Ferill 171. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 172 — 171. mál.
Fyrirspurn
til fjármálaráðherra um Lífeyrissjóð bænda.
Frá Drífu Hjartardóttur.
1. Hve margir sjóðfélagar fá nú greitt úr Lífeyrissjóði bænda?
2. Hve margir sjóðfélagar greiða í sjóðinn?
3. Hve margir sjóðfélagar, sundurliðað eftir kyni, fá nú mánaðarlega greiddar: 0–10 þús. kr., 10–20 þús. kr., 20–30 þús. kr., 30–40 þús. kr., 40–50 þús. kr., meira en 50 þús. kr.?
4. Eru réttindi sjóðfélaga sambærileg við réttindi hjá hliðstæðum sjóðum?
Skriflegt svar óskast.