Ferill 172. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 173  —  172. mál.




Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um skattfríðindi í skjóli laga um alþjóðleg viðskiptafélög.

Frá Ögmundi Jónassyni og Kolbrúnu Halldórsdóttur.



     1.      Hvaða fyrirtæki eða félög njóta skattfríðinda í skjóli laga um alþjóðleg viðskiptafélög, nr. 31/1999?
     2.      Á hvaða sviði starfa þessi fyrirtæki og félög?
     3.      Hve margir starfsmenn starfa á þeirra vegum hér á landi?
     4.      Hvernig hafa Íslendingar hagnast af veru þessara fyrirtækja og félaga hér á landi?
     5.      Hver verður réttur þessara aðila ef lög um alþjóðleg viðskiptafélög verða numin úr gildi?


Skriflegt svar óskast.






















Prentað upp.