Ferill 182. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 185 — 182. mál.
Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um rannsókn óupplýstra mannshvarfa.
Frá Björgvini G. Sigurðssyni.
Ætlar ráðherra að beita sér fyrir frekari rannsókn óupplýstra mannshvarfa, sbr. svar ráðherra við fyrirspurn um mannshvörf á 125. löggjafarþingi (þskj. 286, 142. mál) þar sem fram kemur að samkvæmt bráðabirgðasamantekt séu 42 mannshvörf frá árunum 1945–99 óupplýst ef frá eru taldir þeir sem hafa farist við störf á sjó? Ef svo er, hvernig hyggst ráðherra gera það?
Skriflegt svar óskast.