Ferill 210. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 235 — 210. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegsráðherra um afnám kvótasetningar.
Frá Svanfríði Jónasdóttur.
1. Hvaða skilyrði þurfa að vera fyrir hendi til að ráðherra geti ákveðið að gefa veiðar á kvótasettum nytjastofni frjálsar?
2. Telur ráðherra að þau skilyrði hafi verið fyrir hendi varðandi steinbít sl. vor? Ef svo var, af hverju var tegundin þá kvótasett aftur?