Ferill 212. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 237 — 212. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegsráðherra um laun og launahlutfall í flotanum.
Frá Svanfríði Jónasdóttur.
1. Hvert var hlutfall launa af heildartekjum útgerðar í eftirfarandi útgerðarflokkum uppgjörsárin 1999 og 2000:
a. hjá krókabátum,
b. hjá öðrum smábátum,
c. hjá hefðbundnum vertíðarbátum,
d. hjá ísfisktogurum,
e. hjá frystitogurum,
f. hjá skipum í veiði á uppsjávarfiski?
2. Hverjar voru meðaltekjur skipverja í hverjum útgerðarflokki fyrir sig þessi sömu ár?
Skriflegt svar óskast.