Ferill 231. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 258  —  231. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um setningu reglugerðar skv. 18. gr. a læknalaga.

Frá Sigríði Ingvarsdóttur.



    Hvað líður setningu reglugerðar um viðbrögð og rannsókn mála þegar meðferð heilbrigðisstarfsmanns hefur óvæntan skaða í för með sér, sbr. 18. gr. a læknalaga, nr. 53/1988?