Ferill 245. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 279  —  245. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um nýja framhaldsskóla.

Frá Jóni Bjarnasyni.



     1.      Hvenær er að vænta niðurstöðu í viðræðum milli menntamálaráðuneytisins og sveitarstjórna í Ólafsfirði og Dalvíkurbyggð um stofnun 2–4 ára framhaldsskóla á svæðinu?
     2.      Hvenær er að vænta niðurstöðu í viðræðum milli menntamálaráðuneytisins og sveitarfélaganna á norðanverðu Snæfellsnesi um stofnun framhaldsskóla á svæðinu?