Ferill 259. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 304  —  259. mál.




Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um útflutningsskyldu sauðfjárafurða.

Frá Árna R. Árnasyni.



     1.      Hefur verið kannað hvort útflutningsskyldar sauðfjárafurðir hafi verið seldar á innanlandsmarkaði?
     2.      Ef svo er, hve mikil hefur sú sala orðið og hvernig hefur sú breyting komið fram í ákvörðun um útflutningsskyldu næsta árs?
     3.      Hvernig hafa sauðfjárbændur fengið skil á verðmun?