Ferill 274. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 324  —  274. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um flutning Byggðastofnunar.

Frá Stefaníu Óskarsdóttur.



     1.      Hver er áætlaður heildarkostnaður við flutning Byggðastofnunar frá Reykjavík til Sauðárkróks?
     2.      Hve mikill kostnaður hefur þegar hlotist af þessum flutningi?
     3.      Hvað er áætlað að störfum muni fjölga á Sauðárkróki á næstunni vegna flutnings Byggðastofnunar á næsta ári?
     4.      Hve mörg stöðugildi eru við Byggðastofnun nú samanborið við fyrir ári?
     5.      Hefur Byggðastofnun aðstöðu til fundahalda í Reykjavík?
     6.      Hver er kostnaður við ferðalög innan lands á vegum Byggðastofnunar síðustu þrjú árin?


Skriflegt svar óskast.