Ferill 277. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 327  —  277. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um upplýsingar um fjárhagsmálefni og lánstraust einstaklinga og lögaðila.

Frá Lúðvík Bergvinssyni.



     1.      Hvernig fer fram afhending upplýsinga um fjárhagsmálefni og lánstraust einstaklinga og lögaðila til fyrirtækisins Lánstrausts hf. frá sýslumönnum, héraðsdómstólum og öðrum opinberum aðilum sem veita fyrirtækinu slíkar upplýsingar?
     2.      Hvaða upplýsingar eru veittar?
     3.      Hvað greiðir fyrirtækið fyrir móttöku á þessum upplýsingum og hvernig fer sú greiðsla fram?
     4.      Eru fleiri aðilar en Lánstraust hf. sem safna og miðla upplýsingum um fjárhagsmálefni einstaklinga og lögaðila? Ef svo er, hafa þeir fengið til þess leyfi hjá Persónuvernd og er tryggt að meðferð þeirra sé í samræmi við reglur um söfnun og miðlun upplýsinga um fjárhagsmálefni og lánstraust?