Ferill 295. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 360 — 295. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um alnæmi og kynsjúkdóma.
Frá Margréti Frímannsdóttur.
1. Hversu margir hafa greinst með HIV-smit/alnæmi á ári síðustu fimm ár?
2. Hvernig hefur verið staðið að fræðslu og forvörnum varðandi þennan alvarlega sjúkdóm, t.d. í grunn- og framhaldsskólum?
3. Hversu margir hafa greinst með kynsjúkdóma á ári síðustu fimm ár?
4. Hvernig hefur verið staðið að fræðslu og forvörnum varðandi kynsjúkdóma, t.d. í grunn- og framhaldsskólum?