Ferill 323. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 410 — 323. mál.
Fyrirspurn
til umhverfisráðherra um mat á umhverfisáhrifum skógræktarverkefna.
Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.
1. Í hvaða tilfellum hefur farið fram mat á umhverfisáhrifum landshlutabundinna skógræktarverkefna?
2. Í hvaða tilfellum hefur verið óskað álits Skipulagsstofnunar á skógræktarverkefnum með tilliti til matsskyldu og hvernig hefur Skipulagsstofnun afgreitt þær beiðnir?