Ferill 1. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 475  —  1. mál.




Framhaldsnefndarálit



um frv. til fjárlaga fyrir árið 2002.

Frá meiri hluta fjárlaganefndar.



    Nefndin hefur haft fjárlagafrumvarpið til athugunar frá því að 2. umræða fór fram 27. nóvember sl. Til viðræðna við nefndina komu forsvarsmenn B-hluta stofnana, þ.e. Ríkisútvarps og Íbúðalánasjóðs. Fulltrúar Þjóðhagsstofnunar og efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis komu á fund nefndarinnar til viðræðna um tekjuhlið frumvarpsins og horfur í þjóðarbúskapnum.
    Í nefndarálitinu er fyrst gerð grein fyrir meginbreytingum sem varða tekjuhlið frumvarpsins. Þá er gerð grein fyrir þeim breytingum sem lagt er til að verði gerðar á sundurliðunum 2–4. Að lokum er gerð grein fyrir breytingum sem lagt er til að verði gerðar á 5. og 6. gr. frumvarpsins.
    Framsögumaður meiri hlutans mun gera grein fyrir helstu breytingum sem lagt er til að gerðar verði á 7. gr. í ræðu sinni við upphaf 3. umræðu.
    Í endurskoðaðri tekjuáætlun efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis er gert ráð fyrir að tekjur verði 257,9 milljarðar kr. eins og gert er ráð fyrir í frumvarpinu.
    Tillögur meiri hlutans er varða útgjöld A-hluta ríkissjóðs leiða til um 2.070 m.kr. lækk unar útgjalda. Fjölmargar tillögur eru gerðar til lækkunar útgjalda. Er það liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum í ljósi þess að horfur eru á að tekjur ríkissjóðs verði minni á næsta ári en gert var ráð fyrir í frumvarpinu og að mæta þarf útgjöldum sem fram koma í öðrum breytingartillögum.
    Hér á eftir fylgja skýringar á breytingartillögum meiri hlutans.


SKÝRINGAR VIÐ EINSTAKAR BREYTINGARTILLÖGUR


00 Æðsta stjórn ríkisins

        Lagt er til að fjárheimild æðstu stjórnar ríkisins verði lækkuð um 45,1 m.kr.
201     Alþingi.
        1.04
Alþjóðasamstarf. Lagt er til að fjárveiting til alþjóðasamstarfs Alþingis hækki um 26,4 m.kr. Tillagan er þríþætt. Í fyrsta lagi er um að ræða 15 m.kr. tímabundna hækkun til að kosta útgjöld við fjórar ráðstefnur og fundi á Íslandi, en það eru þemaráðstefna Norðurlandaráðs, fundur þingmannanefndar EES og tveir norrænir samráðsfundir IPU. Í öðru lagi er um að ræða 4,6 m.kr. tímabundna hækkun til að greiða hlut Íslands við að setja upp sýningu helgaða veiðimenningu Vestur-Norðurlanda og í þriðja lagi er um að ræða 6,8 m.kr. hækkun til að mæta gengishækkunum umfram verðlagsforsendur fjárlaga vegna þátttökugjalda í alþjóðasamstarfi og ferðakostnaðar erlendis.
        1.06
Almennur rekstur. Lögð er til 2,4 m.kr. hækkun fjárveitingar til að mæta útgjöldum við framkvæmd kjarasamnings við starfsmenn Alþingis. Jafnframt er lagt til að fjárveiting hækki um 1,5 m.kr. til að mæta gengishækkunum umfram verðlagsforsendur fjárlaga við alþjóðasamstarf á vegum forseta og forsætisnefndar.
         1.07 Sérverkefni. Lögð er til 7 m.kr. tímabundin hækkun framlags til verkefnis við skönnun eldri árganga Alþingistíðinda. Áætlun gerir ráð fyrir að myndað verði heillegt stafrænt og birtingarhæft yfirlit um öll skjöl Alþingis frá því að það var endurreist árið 1845. Þá er lagt til að fjárveiting hækki um 0,6 m.kr. til að mæta gengishækkunum umfram verðlagsforsendur fjárlaga við rekstur Jónshúss og fræðimannsíbúðar í Kaupmannahöfn.
        1.10
Rekstur fasteigna. Lagt er til að framlag til reksturs fasteigna lækki um 10 m.kr. Tillagan er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum.
        5.20
Fasteignir. Lögð er til 23 m.kr. tímabundin lækkun framlags til viðgerða á Alþingishúsinu. Er þá miðað við að tengingu Skála við Alþingishús verði frestað og ekki ráðist í breytingar innan dyra í Alþingishúsinu. Tillagan er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum.
        6.21
Fasteignir. Gerð er tillaga um 50 m.kr. tímabundna lækkun framlags til breytinga í Alþingishúsinu. Er þá miðað við að tengingu Skála við Alþingishús verði frestað og ekki ráðist í breytingar innan dyra í Alþingishúsinu. Tillagan er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum.

01 Forsætisráðuneyti

        Lagt er til að fjárheimild forsætisráðuneytis verði lækkuð um 254 m.kr.
190     Ýmis verkefni.
        1.90
Ýmis verkefni. Til að leiðrétta stöðu fjárlagaliða vegna mótframlaga ráðuneytisins til verkefna íslenska upplýsingasamfélagsins er lagt til að 3 m.kr. millifærist af þessum lið þannig að 1,5 m.kr. færist á lið 01-251 Þjóðmenningarhúsið og 1,5 m.kr. á lið 01-902 Þjóðgarðurinn á Þingvöllum.
203     Fasteignir Stjórnarráðsins.
        6.25
Nýbygging á Stjórnarráðsreit. Lagt er til að framlag til nýbygginga fyrir Stjórnarráðið lækki um 200 m.kr. Tillagan er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum.
251     Þjóðmenningarhúsið.
        1.01
Þjóðmenningarhúsið. Á þennan lið millifærast 1,5 m.kr. af lið 01-190 Ýmis verkefni til að leiðrétta stöðu fjárlagaliða vegna mótframlaga ráðuneytisins til verkefna íslenska upplýsingasamfélagsins eins og að framan greinir.
253     Vest-norrænt menningarhús í Kaupmannahöfn.
        6.21
Vest-norrænt menningarhús í Kaupmannahöfn. Gerð er tillaga um að framlag til framkvæmda við vest-norrænt menningarhús í Kaupmannahöfn lækki tímabundið um 54 m.kr. Tillagan er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum.
902     Þjóðgarðurinn á Þingvöllum.
        6.01
Nýframkvæmdir. Til að leiðrétta stöðu fjárlagaliða vegna mótframlaga ráðuneytisins til verkefna íslenska upplýsingasamfélagsins er lagt til að 1,5 m.kr. millifærist á þennan lið af lið 01-190 Ýmis verkefni.

02 Menntamálaráðuneyti

        Lagt er til að fjárheimild menntamálaráðuneytis verði lækkuð um 159,3 m.kr.
201     Háskóli Íslands.
        1.02
Rannsóknir og önnur verkefni. Lagt er til að framlag til rannsókna lækki um 25 m.kr. og er því áætlað fyrir 55 m.kr. tímabundinni hækkun til rannsókna í skólanum frá fjárlögum yfirstandandi árs í stað 80 m.kr. samkvæmt frumvarpinu. Í fjáraukalögum fyrir árið 2001 er farið fram á 80 m.kr. framlag til rannsókna í skólanum. Tillagan er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum.
        1.13
Háskólasjóður. Lagt er til að framlag til Háskóla Íslands vegna sóknargjalda verði lækkað um 4 m.kr. frá frumvarpinu en þar er gert ráð fyrir 14,9 m.kr. hækkun á þessu viðfangsefni. Skv. 2. gr. laga nr. 91/1987 er framlagið reiknað sem tiltekin fjárhæð fyrir hvern einstakling 16 ára og eldri í lok næstliðins árs á undan gjaldári. Í greininni er jafnframt kveðið á um að sóknargjaldið hækki í samræmi við hækkanir á meðaltekjuskattsstofni milli næstliðinna tveggja ára. Þar sem framlag til þessarar starfsemi hefur verið hækkað að fullu miðað við launabreytingar milli ára hefur það hækkað umfram almennar verðlagshækkanir sem gert hefur verið ráð fyrir í framlögum til rekstrarverkefna í fjárlögum um árabil. Þá hefur ekki heldur verið dregið úr hækkunum á framlaginu þau ár sem fjárlög hafa gert ráð fyrir hagræðingu í rekstri ríkisstofnana og sjálfseignarstofnana sem ríkið greiðir framlög til. Í frumvarpi til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum sem lagt hefur verið fram á Alþingi er lögð til breyting á tilvitnaðri grein laganna fyrir árið 2002 á þann veg að fjárhæð fyrir hvern einstakling verði óbreytt frá árinu 2001. Framlagið hækkar þó sem nemur áætlaðri fjölgun einstaklinga milli ára en hún er talin verða 1%. Tillagan er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum.
        6.50
Byggingarframkvæmdir og tækjakaup. Lagt er til að fyrirhuguðum 400 m.kr. framkvæmdum við Náttúrufræðihús sem miðað var við að hæfust á miðju ári 2002 verði seinkað þannig að framkvæmt verði fyrir 200 m.kr. á árinu. Tillagan er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum.
318     Framhaldsskólar, stofnkostnaður.
        6.90
Byggingarframkvæmdir, óskipt. Lagt er til að frestað verði fyrirhuguðum framkvæmdum við framhaldsskóla að fjárhæð 100 m.kr. og nema byggingarframkvæmdir við framhaldsskóla þá 372 m.kr. á árinu 2002. Skipting framlagsins er sýnd í breytingartillögum meiri hlutans.
319     Framhaldsskólar, almennt.
        1.90
Framhaldsskólar, óskipt. Lagt er til að framlag til leigugreiðslu framhaldsskóla til Fasteigna ríkisins og Fasteigna framhaldsskóla, sem ganga til viðhalds skólahúsnæðis, lækki tímabundið um 75 m.kr. Lækkunin hefur áhrif á framlög til allra framhaldsskólanna og er skipting fjárhæðarinnar á einstaka liði fjárlaga sýnd í sérstökum yfirlitum I í breytingartillögum meiri hlutans. Í frumvarpinu er áætlað fyrir 150 m.kr. hækkun á milli ára og er því lagt til að helmingi þeirrar hækkunar verði frestað til ársins 2003. Tillagan er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum.
804
     Kvikmyndaskoðun.
        1.01
Kvikmyndaskoðun. Menntamálaráðuneytið hefur breytt reglugerð um Kvikmyndaskoðun, nr. 388/1995, sem áætlað er að leiði til þess að áætluð rekstrargjöld lækki um 1 m.kr. og áætlaðar innheimtar ríkistekjur vegna kvikmyndaskoðunar lækki um sömu fjárhæð. Breytingin hefur því ekki áhrif á útgjöld ríkisins.
901     Fornleifavernd ríkisins.
        1.01
Fornleifavernd ríkisins. Lagt er til að millifærðar verði 30 m.kr. á þennan nýja lið í samræmi við ákvæði safnalaga. Þar af eru 20,6 m.kr. millifærðar af Þjóðminjasafni Íslands, viðfangsefni 1.01, og 9,4 m.kr. vegna launa minjavarða sem eru starfsmenn Fornleifaverndar ríkisins af viðfangsefni 1.10 Byggða- og minjasöfn.
902     Þjóðminjasafn Íslands.
        1.01
Þjóðminjasafn Íslands. Gerð er tillaga um fjárveitingu til þriggja verkefna sem alls nema 19 m.kr. Í fyrsta lagi er lögð til 9 m.kr. tímabundin fjárveiting til átaks í fjarvinnsluskrám safnsins í gagnagrunninn Sarp. Í öðru lagi er gerð tillaga um 6 m.kr. tímabundna hækkun fjárveitingar til áframhaldandi rannsókna í Reykholti í Borgarfirði. Loks er gerð tillaga um 4 m.kr. fjárveitingu til Þjóðminjasafnsins til að taka til varðveislu og skráningar málverkasafn Bjarna Jónssonar um íslenska sjávarhætti. Um lokagreiðslu er að ræða.
             Þá er lagt er til að millifærðar verði 20,6 m.kr. af þessum lið á nýjan fjárlagalið, 02-901 Fornleifavernd ríkisins, í samræmi við ný safnalög.
        1.10
Byggða- og minjasöfn. Lagt er til að millifærðar verði 48,4 m.kr. af liðnum. Annars vegar fara 9,4 m.kr. á nýjan fjárlagalið Fornleifaverndar Íslands í samræmi við ákvæði nýrra safnalaga og hins vegar 39 m.kr. á lið 02-918 Safnasjóður sem er nýr liður samkvæmt safnalögum sem samþykkt voru á síðasta löggjafarþingi.
918     Safnasjóður.
        1.10
Safnasjóður. Lögð er til 58 m.kr. fjárveiting sem er millifærð á þennan nýja lið samkvæmt safnalögum sem samþykkt voru á síðasta löggjafarþingi. Millifærðar eru 39 m.kr. af lið 02-902 1.10 Þjóðminjasafn, byggða- og minjasöfn, 16 m.kr. af liðnum 02-919 1.90 Söfn, ýmis framlög, og 3 m.kr. af fjárlagalið umhverfisráðuneytsins, 14-190 1.59 Náttúrugripasöfn.
919     Söfn, ýmis framlög.
        1.90
Söfn, ýmis framlög. Liðurinn hækkar um 3 m.kr. Af fjárveitingunni eru 2 m.kr. ætlaðar Sjávarsafninu á Norðurtanga, Ólafsvík, en gert var ráð fyrir 0,5 m.kr. til þess við 2. umræðu um frumvarpið. Þá er gert ráð fyrir 1 m.kr. til varðveislu og viðhalds eikarbátsins Húna II.
             Hins vegar er lagt til að millifærðar verði 16 m.kr. af þessum lið á nýjan fjárlagalið 02-918 Safnasjóður sem stofnað er til með nýjum safnalögum.
969     Menningarstofnanir, viðhald og stofnkostnaður.
        6.21
Endurbótasjóður menningarstofnana. Lagt er til að fallið verði frá fyrirhuguðum 50 m.kr. framkvæmdum á vegum Endurbótasjóðs. Nemur framlag úr ríkissjóði því 335 m.kr. samanborið við 385 m.kr. í frumvarpinu. Gerð er breytingartillaga við 6. gr. frumvarpsins um skerðingarákvæði. Skipting framlagsins kemur fram í breytingartillögum meiri hlutans. Tillagan er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum.
971     Ríkisútvarpið.
        1.10
Ríkisútvarpið, afnotagjöld. Lagt er til að framlag hækki um 250 m.kr. vegna ákvörðunar um 7% hækkun á afnotagjöldum Ríkisútvarpsins. Afnotagjöldin færast um tekjuhlið fjárlaga og er ráðstafað til Ríkisútvarpsins. Hækka tekjur og gjöld um sömu fjárhæð og hefur breytingin því ekki áhrif á afkomu ríkissjóðs.
977     Höfundarréttargjöld.
        1.15
Höfundarréttargjald vegna flutnings tónverka við jarðarfarir. Lagt er til að áætlað verði fyrir 1,7 m.kr. meiri ríkistekjum af höfundarréttargjaldi sem innheimt er vegna flutnings tónverka við jarðarfarir. Innheimtan fer fram á vegum STEF í samræmi við 3. gr. reglna nr. 232/1974. Tekjur af gjaldinu námu rúmlega 2,7 m.kr. á árinu 2000 og er því lagt til að áætlað verði fyrir sömu fjárhæðum á árinu 2002. Breytingin hefur ekki áhrif á afkomu ríkissjóðs.
982     Listir, framlög.
        1.83
Samningur við Menningarborgarsjóð og 1.84 Samningur við Menningarborgarsjóð. Lagt er til að 5 m.kr. framlag til samnings við Menningarborgarsjóð á viðfangsefni 1.83 verði millifært yfir á nýtt viðfangsefni, 1.84, með sama heiti. Vegna mistaka var framlagið fært á þetta viðfangsefni 1.83 sem hefur í fjárlögum og bókhaldi staðið fyrir önnur verkefni.
        1.90
Listir. Gerð er tillaga um 5 m.kr. framlag til Rannsóknastofnunar í helgisiðum í Skálholti. Óskipt fé liðarins lækkar um sömu fjárhæð.
        6.43
Menningarmiðstöðvar á Austurlandi. Farið er fram á 17 m.kr. tímabundið framlag til uppbyggingar menningarmiðstöðva á Austurlandi í samræmi við viljayfirlýsingu menntamálaráðherra og formanns Sambands sveitarfélaga á Austurlandi í tengslum við undirritun samnings milli ríkis og sveitarfélaga í landsfjórðungnum um að efla þar menningarstarf og beina stuðningi ríkis og sveitarfélaga þar í einn farveg.
983     Ýmis fræðistörf.
        1.10
Fræðistörf. Gerð er tillaga um 1,5 m.kr. framlag af liðnum til Margrétar Hermanns Auðardóttur vegna rannsókna í Herjólfsdal.
999     Ýmislegt.
        1.90
Ýmis framlög. Gerð er tillaga um 2 m.kr. framlag til framkvæmda á Laugarbrekku undir Jökli til að minnast Guðríðar Þorbjarnardóttur.

03 Utanríkisráðuneyti

        Lagt er til að fjárheimild utanríkisráðuneytis verði lækkuð um 43,4 m.kr.
201     Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli.
        1.10
Tollgæsla á Keflavíkurflugvelli. Lagt er til að fjármögnunarliðurinn Greitt úr ríkissjóði hækki um 67,6 m.kr. og á móti lækkar fjármögnunarliðurinn Innheimt af ríkistekjum um sömu fjárhæð. Um er að ræða breytingu á fjárreiðum þar sem tekjur af vopnaleitargjaldi hafa verið færðar á embættið, en nú er lagt til að þær verði færðar á Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli í samræmi við lög nr. 60/1998, um loftferðir.
        1.20
Löggæsla á Keflavíkurflugvelli. Gerð er tillaga um 22 m.kr. tímabundið framlag vegna aukins kostnaðar í kjölfar hryðjuverkanna í Bandaríkjunum 11. september sl. Um er að ræða kostnað vegna aukins eftirlits á varnarsvæðum.
             Þá er gerð tillaga um að sértekjur embættisins hækki um 137,6 m.kr. vegna útseldrar þjónustu við vopnaleit hjá embættinu. Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli hefur falið embættinu að framkvæma vopnaleitina samkvæmt samningi og hækka því sértekjur embættisins. Útgjöldunum er mætt með jafnháum tekjum af vopnaleitargjaldi á tekjuhlið fjárlaga. Í fjárlögum 2001 var áætlað að vopnaleitargjaldið skilaði 67,6 m.kr., miðað við 125 kr. á farþega sem fer um Keflavíkurflugvöll, en nú er gert ráð fyrir að gjaldið verði hækkað og skili á árinu 2002 137,6 m.kr. og verði 300 kr. á farþega. Hækkunin er til að mæta kostnaði við aukna vopnaleit í kjölfar hryðjuverkanna í Bandaríkjunum 11. september sl. Um er að ræða greiðslur frá Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli fyrir vopnaleit sem framkvæmd er hjá embættinu.
             Loks er lagt til breytt heiti á viðfangsefninu.
211     Flugmálastjórn Keflavíkurflugvelli.
        1.01
Flugmálastjórn Keflavíkurflugvelli. Lagt er til að fjárheimild stofnunarinnar hækki um 137,6 m.kr. vegna aðkeyptrar þjónustu við vopnaleit hjá embætti sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli. Stofnunin hefur falið embættinu að framkvæma vopnaleitina samkvæmt samningi og koma því fram auknar sértekjur hjá sýslumanninum á Keflavíkurflugvelli. Útgjöldunum er mætt með jafnháum tekjum af vopnaleitargjaldi á tekjuhlið fjárlaga. Í fjárlögum 2001 var áætlað að vopnaleitargjaldið skilaði 67,6 m.kr., miðað við 125 kr. á farþega sem fer um Keflavíkurflugvöll, en nú er gert ráð fyrir að gjaldið verði hækkað og skili á árinu 2002 137,6 m.kr. og verði 300 kr. á farþega. Hækkunin er til að mæta kostnaði við aukna vopnaleit í kjölfar hryðjuverkanna í Bandaríkjunum 11. september sl.
             Gjöld stofnunarinnar lækka um 20,4 m.kr. Samkvæmt endurskoðaðri áætlun um tekjur af lendingargjaldi er gert ráð fyrir að tekjurnar verði 531,2 m.kr. árið 2002. Gert er ráð fyrir að lendingartonnum fækki um 20% vegna minni umferðar á árinu 2002. 25% hluti áætlaðra lendingargjalda sem runnu til Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar í B-hluta fer nú í að greiða niður skuldir Flugmálastjórnar og færist sem viðskiptahreyfing í fjárlögum fyrir árið 2002. Miðað við 531,2 m.kr. tekjur er sá hluti 132,8 m.kr. Hins vegar eru tekjur stofnunarinnar skertar vegna hagræðingar og samtals verður því viðskiptahreyfingin 113,9 m.kr.
401     Alþjóðastofnanir.
        1.87
Íslensk friðargæsla. Lögð er til tímabundin lækkun framlags um 45 m.kr. á viðfangsefnið. Tillagan er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum.

04 Landbúnaðarráðuneyti

        Lagt er til að fjárheimild landbúnaðarráðuneytis verði lækkuð um 9 m.kr.
190     Ýmis verkefni.
        1.11
Framkvæmd búvörusamnings. Lögð er til 5 m.kr. lækkun framlags til framkvæmdanefndar búvörusamninga. Tillagan er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum.
        1.15
Verðlagsnefnd landbúnaðarafurða. Lögð er til 3 m.kr. lækkun framlags til verðlagsnefndar landbúnaðarafurða. Tillagan er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum.
        1.90
Ýmis verkefni. Lögð er til 1 m.kr. lækkun safnliðarins. Sundurliðun var sýnd í sérstökum yfirlitum III í breytingartillögum meiri hlutans við 2. umræðu um frumvarpið. Fjárveiting til einstakra verkefna helst óbreytt en óskipt fé lækkar.
236     Aðfangaeftirlit ríkisins.
        1.01
Aðfangaeftirlit ríkisins. Lögð er til 1,5 m.kr. lækkun á framlagi. Tillagan er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum.
321     Skógrækt ríkisins.
        1.01
Skógrækt ríkisins. Lagt er til að veitt verði 8 m.kr. tímabundið framlag til Skógræktar ríkisins. Fjárþörf þessi er til komin vegna þess að Skógræktin þarf að aðlaga rekstur sinn úrskurði samkeppnisráðs nr. 33/1999. Í úrskurðinum kemur fram að stofnunin skuli hætta framleiðslu skógarplantna. Fjárveitingin kemur í stað tekna af sölu plantna og er áformað að hún lækki um 2 m.kr. á ári til ársins 2005.
831     Jarðasjóður og Jarðeignir ríkisins.
        6.20
Jarðasjóður og Jarðeignir ríkisins. Lögð er til 6,5 m.kr. lækkun á framlagi. Tillagan er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum.

05 Sjávarútvegsráðuneyti

        Lagt er til að fjárheimild sjávarútvegsráðuneytis verði hækkuð um 71 m.kr.
190     Ýmis verkefni.
        1.90
Ýmislegt. Gerð er tillaga um 10 m.kr. tímabundna fjárveitingu til könnunar á hagkvæmni kalkþörungavinnslu í Arnarfirði annars vegar og Húnaflóa hins vegar, 5 m.kr. á hvorn stað.
202     Hafrannsóknastofnunin.
        1.30
Rannsóknaskip. Lagt er til að fjárveiting til stofnunarinnar verði hækkuð um 10 m.kr. vegna verðhækkana á eldsneyti. Undanfarin missiri hefur eldsneyti sem notað er til að knýja rannsóknarskip Hafrannsóknastofnunarinnar hækkað mikið í verði. Þessar verðhækkanir stafa að stórum hluta af þróun olíuverðs á alþjóðamörkuðum en í þeim gætir einnig áhrifa af lækkandi gengi íslensku krónunnar. Lagt er til að fjárveiting stofnunarinnar verði verðbætt á næsta ári í ljósi framangreinds en einnig í ljósi spár efnahagsdeildar OECD um 3,8% lækkun á innflutningsverði hráolíu á árinu 2002.
             Settur hefur verið upp sérstakur kostnaðarútreikningur vegna eldsneytis fyrir bæði Hafrannsóknastofnunina og Landhelgisgæsluna. Reikningurinn er útfærður þannig að fari olíuverð lækkandi miðað við forsendur fjárlaga fyrir árið 2002 verður ávinningurinn reiknaður mánaðarlega hjá þessum stofnunum með hliðsjón af olíunotkun. Það verður síðan á ábyrgð stofnananna að verðlagsávinningurinn verði ekki notaður í aðra starfsemi heldur skili hann sér í samsvarandi afgangi á fjárheimildum í árslok. Fari eldsneytisverð hins vegar hækkandi miðað við forsendur fjárlaga fyrir árið 2002 færist tapið á sama hátt á reikninginn og skýrir þá útgjöld umfram fjárheimildir í árslok sem því nemur. Slík umframgjöld kunna þá að koma til skoðunar við árlegan undirbúning fjárlaga en þó er gert ráð fyrir að stofnanirnar hafi nokkurt svigrúm til sveiflujöfnunar á eldsneytiskostnaði milli ára eða nýti afgang frá fyrri árum.
        5.31 Viðhald rannsóknaskipa. Lagt er til að 25 m.kr. framlag í frumvarpinu til viðgerða á rannsóknarskipinu Bjarna Sæmundssyni falli niður þar sem hluta af viðgerð skipsins verður frestað. Tillagan er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum.
204     Fiskistofa.
        1.01
Fiskistofa. Lagt er til að tekjur Fiskistofu verði auknar um 50 m.kr. og bein framlög úr ríkissjóði til stofnunarinnar lækki að sama skapi. Áformað er að hækka veiðieftirlitsgjald þannig að það standi að fullu undir kostnaði við veiðieftirlit Fiskistofu. Tillagan er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum.
811     Þróunarsjóður sjávarútvegsins.
        6.41
Þróunarsjóður sjávarútvegsins. Gert er ráð fyrir 76 m.kr. hærri innheimtu ríkistekna af þróunarsjóðsgjöldum sem renna til sjóðsins. Samsvarandi hækkun verður gerð á tekjuhlið fjárlaga og hefur breytingin því ekki áhrif á afkomu ríkissjóðs.

06 Dóms- og kirkjumálaráðuneyti

        Lagt er til að fjárheimild dóms- og kirkjumálaráðuneytis verði lækkuð um 139,6 m.kr.
397     Schengen-samstarf.
        6.01
Tæki og búnaður. Lagt er til að 12 m.kr. framlag til hugbúnaðargerðar og til kaupa á tækjum vegna Schengen-samstarfsins falli niður. Tillagan er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum.
705     Kirkjumálasjóður.
        1.10
Kirkjumálasjóður. Gerð er tillaga um að lækka framlag til Kirkjumálasjóðs um 8 m.kr. frá því sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu en þar er gert ráð fyrir 11,8 m.kr. hækkun. Framlagið er reiknað sem 11,3% af sóknargjöldum og er lækkunin í samræmi við tillögur á öðrum liðum fjárlaga um að dregið verði úr aukningu þessara framlaga. Tillagan er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum.
733     Kirkjugarðsgjöld.
        1.11
Kirkjugarðar. Lagt er til að Kirkjugarðasambandi Íslands verði veitt 3 m.kr. tímabundið framlag til að hægt verði að halda áfram skráningu í fámennari sóknum landsins sem ekki hafa möguleika á að greiða fyrir þá vinnu. Um er að ræða söfnun og skráningu legstaða- og söguupplýsinga í sóknum sem hafa færri en 500 gjaldendur, svo og kostnað við mælingu og gerð korta viðkomandi kirkjugarða. Verkefnið er unnið til að koma legstaðaskrám og uppdráttum af kirkjugörðum inn á vefinn gardur.is.
             Lagt er til að framlag til kirkjugarða vegna kirkjugarðsgjalds verði lækkað um 30,4 m.kr. eða um sömu fjárhæð og gert er ráð fyrir að framlagið hækkaði í frumvarpinu. Skv. 39. gr. laga nr. 36/1993 er framlag til kirkjugarða reiknað sem tiltekin fjárhæð fyrir hvern einstakling 16 ára og eldri í lok næstliðins árs á undan gjaldári. Í greininni er jafnframt kveðið á um að kirkjugarðsgjaldið hækki í samræmi við hækkanir á meðaltekjuskattsstofni milli næstliðinna tveggja ára. Þar sem framlag til þessara starfsemi hefur verið hækkað að fullu miðað við launabreytingar milli ára hefur það hækkað umfram þær almennu verðlagshækkanir sem gert hefur verið ráð fyrir í framlögum til rekstrarverkefna í fjárlögum frá því lögin voru sett árið 1993. Þá hefur ekki heldur verið dregið úr hækkunum á framlaginu þau ár sem fjárlög hafa gert ráð fyrir hagræðingu í rekstri ríkisstofnana og sjálfseignarstofnana. Í frumvarpi til laga um ráðstafanir í ríkisfjármál um sem lagt hefur verið fram á Alþingi er lögð til breyting á tilvitnaðri grein laganna fyrir árið 2002 á þann veg að fjárhæð fyrir hvern einstakling verði óbreytt frá árinu 2001. Framlagið hækkar þó sem nemur áætlaðri fjölgun einstaklinga milli ára en hún er talin verða 1%. Tillagan er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum.
        1.13
Kirkjugarðasjóður. Lagt er til að framlag til Kirkjugarðasjóðs lækki um 2,6 m.kr. frá því sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu. Framlagið er reiknað sem 8% hlutdeild í kirkjugarðsgjaldi og er lækkunin í samræmi við tillögu um að dregið verði úr útgjaldaaukningu kirkjugarða á viðfangsefni 1.11 undir þessum lið fjárlaga. Tillagan er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum.
735     Sóknargjöld.
        1.10
Sóknargjöld til þjóðkirkjunnar og 1.20 Sóknargjöld til annarra trúfélaga. Lagt er til að framlag til þjóðkirkjunnar vegna sóknargjalda verði lækkað um 70,5 m.kr. frá því sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu en þar er gert ráð fyrir 104,7 m.kr. hækkun á viðfangsefni. Þá er lagt til að framlag til annarra trúfélaga vegna sóknargjalda verði lækkað um 6,1 m.kr. frá því sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu en þar er gert ráð fyrir 14,8 m.kr. hækkun á viðfangsefninu. Skv. 2. gr. laga nr. 91/1987 er framlagið reiknað sem tiltekin fjárhæð fyrir hvern einstakling 16 ára og eldri í lok næstliðins árs á undan gjaldári. Í greininni er jafnframt kveðið á um að sóknargjaldið hækki í samræmi við hækkanir á meðaltekjuskattsstofni milli næstliðinna tveggja ára. Þar sem framlag til þessarar starfsemi hefur verið hækkað að fullu miðað við launabreytingar milli ára hefur það hækkað umfram þær almennu verðlagshækkanir sem gert hefur verið ráð fyrir í framlögum til rekstrarverkefna í fjárlögum um árabil. Þá hefur ekki heldur verið dregið úr hækkunum á framlaginu þau ár sem fjárlög hafa gert ráð fyrir hagræðingu í rekstri ríkisstofnana og sjálfseignarstofnana. Í frumvarpi til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum sem lagt hefur verið fram á Alþingi er lögð til breyting á tilvitnaðri grein laganna fyrir árið 2002 á þann veg að fjárhæð fyrir hvern einstakling verði óbreytt frá árinu 2001. Framlagið hækkar þó sem nemur áætlaðri fjölgun einstaklinga milli ára en hún er talin verða 1%. Tillagan er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum.
736
     Jöfnunarsjóður sókna.
        1.10
Jöfnunarsjóður sókna. Gerð er tillaga um að lækka framlag til Jöfnunarsjóðs sókna um 13 m.kr. frá því sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu en þar er gert ráð fyrir 19,4 m.kr. hækkun. Framlagið er reiknað sem 18,5% af sóknargjöldum og er lækkunin í samræmi við tillögur á öðrum liðum fjárlaga um að dregið verði úr aukningu þessara framlaga. Tillagan er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum.

07 Félagsmálaráðuneyti

        Lagt er til að fjárheimild félagsmálaráðuneytis verði lækkuð um 234 m.kr.
400     Barnaverndarstofa.
        1.20
Heimili fyrir börn og unglinga. Veitt er 10 m.kr. framlag til meðferðarheimilis Götusmiðjunnar að Árvöllum til að styrkja starfsemi heimilisins.
701     Málefni fatlaðra, Reykjavík.
        1.01
Almennur rekstur. Lagt er til að framlag til Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík hækki um 25 m.kr. vegna reksturs nýs sambýlis í samræmi við áform félagsmálaráðuneytis um styttingu biðlista.
             Jafnframt er lagt til að framlag til Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík hækki um 25 m.kr. til eflingar skammtímaþjónustu fyrir fatlaða í Reykjavík.
795     Framkvæmdasjóður fatlaðra.
        6.01
Framkvæmdasjóður fatlaðra. Lagt er til að framlag til sjóðsins lækki um 25 m.kr. frá því sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu en að fjárheimildin verði færð á lið 07-701 Málefni fatlaðra, Reykjavík og verði varið til eflingar skammtímaþjónustu fyrir fatlaða.
984     Atvinnuleysistryggingasjóður.
        1.11
Atvinnuleysisbætur. Lagt er til að 250 m.kr. vaxtatekjur Atvinnuleysistryggingasjóðs af inneign markaðra tekna verði færðar á sjóðinn í samræmi við framsetningu í ríkisreikningi. Endurskoðuð áætlun um vexti af inneign sjóðsins af mörkuðum tekjum leiðir í ljós að þær verða mun hærri en áætlað var í frumvarpinu.
987     Tryggingasjóður sjálfstætt starfandi einstaklinga.
        1.10
Tryggingasjóður sjálfstætt starfandi einstaklinga. Lagt er til að 10 m.kr. vaxtatekjur Tryggingasjóðs sjálfstætt starfandi einstaklinga af inneign markaðra tekna verði færðar á sjóðinn í samræmi við framsetningu ríkisreiknings.
989     Fæðingarorlof.
        1.01
Umsýslukostnaður Tryggingastofnunar ríkisins og 1.11 Fæðingarorlofssjóður. Lagt er til að 48 m.kr. fjárveiting til rekstrarkostnaðar Fæðingarorlofssjóðs verði millifærð af tilfærsluframlagi sjóðsins, viðfangsefni 1.11, á rekstrarviðfangsefni, 1.01. Samkvæmt lögum nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof, sér Tryggingastofnun ríkisins um vörslu sjóðsins, reikningshald hans og afgreiðslu í umboði félagsmálaráðherra. Áætlunin er byggð á mati Ríkisendurskoðunar sem telur að kostnaður Tryggingastofnunar árið 2002 nemi 48 m.kr. vegna launakostnaðar, viðhalds hugbúnaðar og hlutdeildar í föstum kostnaði.
999     Félagsmál, ýmis starfsemi.
        1.49
Mótttaka flóttamannahópa. Lögð er til 10 m.kr. lækkun á framlagi til móttöku flóttamannahópa sem frumvarpið gerir ráð fyrir, eða úr 49,7 m.kr. í 39,7 m.kr. Tillagan er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum.
        1.90
Ýmis framlög. Gerð er tillaga um 1 m.kr. fjárveitingu til foreldra hreyfihamlaðs drengs til lyftukaupa á heimili fjölskyldunnar.

08 Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti

        Lagt er til að fjárheimild heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis verði lækkuð um 106,9 m.kr.
201     Tryggingastofnun ríkisins.
        1.01
Tryggingastofnun ríkisins. Óskað er eftir að 48 m.kr. verði færðar af 07-989 1.01 Umsýslukostnaður til greiðslu umsýslukostnaðar Tryggingastofnunar ríkisins vegna starfsemi fæðingarorlofssjóðs árið 2002. Samkvæmt lögum nr. 95/2000, um fæðingar- og foreldraorlof, sér Tryggingastofnun ríkisins um vörslu sjóðsins, reikningshald hans og afgreiðslu í umboði félagsmálaráðherra. Áætlunin er byggð á mati Ríkisendurskoðunar sem telur að kostnaður Tryggingastofnunar árið 2002 nemi 48 m.kr. vegna launakostnaðar, viðhalds hugbúnaðar og hlutdeildar í föstum kostnaði. Tekjur og gjöld Tryggingastofnunar hækka um sömu fjárhæð þar sem kostnaðurinn er greiddur af tekjum Fæðingarorlofssjóðs.
203     Bætur samkvæmt lögum um félagslega aðstoð.
        1.51
Uppbætur. Lagt er til veitt verði heimild til að fjölga dvalarrýmum á Hornafirði um tvö og að kostnaður við það verði 3,2 m.kr. Viðræður standa yfir við Hornafjörð um fyrirkomulag heilsugæslu- og öldrunarþjónustu í Austur-Skaftafellssýslu. Lög um reynslusveitarfélög falla úr gildi um næstu áramót og samningur við Hornafjörð sem gerður er á grundvelli þeirra laga. Meginmarkmið nýs samningsins er að efla stjórn sveitarfélagsins á málaflokknum, laga stjórnsýsluna betur að staðbundnum aðstæðum, bæta þjónustu við íbúana og nýta betur fjármagn hins opinbera. Í samningsdrögum er gert ráð fyrir að framlag hækki um 3,2 m.kr. vegna fjölgunar um tvö dvalarrými. Enn fremur er áformuð framtíðaruppbygging öldrunarþjónustu á svæðinu, en áætlanir eru um að byggja við hjúkrunarheimilið.
206     Sjúkratryggingar.
        1.11
Lækniskostnaður. Lögð er til 160 m.kr. lækkun sjúkratrygginga vegna áforma um afnám 5.000 kr. þaks á hverja komu til sérfræðilæknis. Eftir sem áður verða heildarþök vegna lækniskostnaðar óbreytt. Tillagan er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum.
        1.15
Lyf. Lögð er til 310 m.kr. lækkun lyfjaútgjalda vegna breytinga á greiðsluþátttöku lyfja. Tillagan er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum.
324     Heyrnar- og talmeinastöð Íslands.
        1.01
Heyrnar- og talmeinastöð Íslands. Lagt er til að rekstrargrunnur stofnunarinnar verði hækkaður um 6 m.kr. vegna aukinna verkefna. Hér er um að ræða kostnað við læknisþjónustu og ráðningu heyrnarfræðings til að hægt verði að fjölga afgreiðslu heyrnartækja og auka þjónustu við landsbyggðina.
             Hins vegar er lagt til að 57,9 m.kr. framlag sem hefur verið til ráðstöfunar til að greiða niður hjálpartæki vegna heyrnar- og talmeina verði fært á lið 08-399 1.55 Niðurgreiðsla hjálpartækja vegna heyrnar- og talmeina. Heilbrigðisráðherra hefur lagt fram frumvarp á Alþingi þar sem lagt er til að heimilt verði að veita einkaaðilum rekstrarleyfi til að annast tiltekna þjónustu við heyrnarskerta og heyrnarlausa. Neytendur njóta sömu greiðsluþátttöku ríkis við kaup á hjálpartækjum án tillits til þess hvert þeir kjósa að beina viðskiptum sínum.
358     Fjórðungssjúkrahúsið Akureyri.
        1.01
Fjórðungssjúkrahúsið Akureyri. Gerð er tillaga um 8,8 m.kr. fjárveitingu til að mæta kostnaði við bakvaktir lækna við sjúkraflugsvakt á Fjórðungssjúkrahúsinu Akureyri. Fyrr á þessu ári var gerður samningur við Flugfélag Íslands um rekstur sjúkraflugs á Norður- og Austurlandi. Með honum tryggir Flugfélag Íslands þjónustu á svæðinu allan sólarhringinn út frá Akureyri. Með samningnum er sett á fót miðstöð sjúkraflugs á Akureyri og starfsemi Fjórðungssjúkrahússins efld. Til að bæta þjónustuna enn frekar er áformað að hefja bakvaktir lækna við Fjórðungssjúkrahúsið. Með þessari nýbreytni þarf starfandi læknir á svæðinu ekki lengur að fylgja sjúklingi í sjúkraflug og skilja héraðið eftir læknislaust.
370     Sjúkrahús með fjölþætta starfsemi.
        1.01
Sjúkrahús með fjölþætta starfsemi. Lagt er til að veitt verði 30 m.kr. framlag til að koma á þjónustusamningi við SÁÁ og er framlagið háð því skilyrði að samkomulag náist og þjónustusamningur verði undirritaður.
             Þá er farið fram á 20 m.kr. framlag vegna fyrirhugaðs átaks á sviði geðheilbrigðismála. Geðsjúkdómar og geðraskanir eru á meðal algengustu sjúkdóma á Íslandi. Brýnt er að efla forvarnir á þessu sviði sem og þjónustu við þá sem haldnir eru þessum sjúkdómum. Einnig er farið fram á 20 m.kr. framlag til sama málefnis á liðnum 08-500 Heilsugæslustöðvar, almennt.
373     Landspítali – háskólasjúkrahús.
        1.01
Landspítali – háskólasjúkrahús. Lögð er til 200 m.kr. hækkun framlags til styrktar reksturs sjúkrahússins. Er framlagið ætlað til að auðvelda frekari sérhæfingu og tryggja að reksturinn verði innan fjárheimilda árið 2002.
385     Framkvæmdasjóður aldraðra.
        6.01
Stofnkostnaður og endurbætur. Lögð er til 41,9 m.kr. lækkun á framlagi til stofnframkvæmda sjóðsins. Tillagan er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum.
399     Heilbrigðismál, ýmis starfsemi.
        1.42
Kostnaður samkvæmt lögum um farsóttir, sóttvarnir og ónæmi. Lagt er til að veitt verði 30 m.kr. framlag til fjölþættra sýklavarna og er það til viðbótar 20 m.kr. framlagi sem samþykkt var við 2. umræðu um frumvarpið. Gert er ráð fyrir að birgðir af bóluefni verði auknar, viðbrögð við bráðameðferð efld og fræðsla meðal heilbrigðisstarfsmanna aukin. Einnig er gert ráð fyrir að Landspítali – háskólasjúkrahús ráðist í endurbætur á aðstöðu og breyti forgangsröðun stofnkostnaðarverkefna í þessum tilgangi.
        1.55
Niðurgreiðsla hjálpartækja vegna heyrnar- og talmeina. Lagt er til að 57,9 m.kr. framlag sem hefur verið til ráðstöfunar til að greiða niður hjálpartæki vegna heyrnar- og talmeina verði fært á þetta nýja viðfangsefni 08-399 1.55 Niðurgreiðsla hjálpartækja vegna heyrnar- og talmeina. Heilbrigðisráðherra hefur lagt fram frumvarp á Alþingi þar sem lagt er til að heimilt verði að veita einkaaðilum rekstrarleyfi til að annast tiltekna þjónustu við heyrnarskerta og heyrnarlausa. Gert er ráð fyrir að neytendur njóti sömu greiðsluþátttöku ríkis við kaup á hjálpartækjum án tillits til þess hvert þeir kjósa að beina viðskiptum sínum.
             Jafnframt er lagt til að 12 m.kr. framlagi verði varið til að draga úr biðlistum eftir hjálpartækjum fyrir heyrnarskerta.
496     Reynslusveitarfélagið Akureyri.
        1.11
Hjúkrunarrými. Lögð er til 41 m.kr. hækkun framlags til að mæta kostnaði við breytingu 18 dvalarrýma í hjúkrunarrými. RAI-mat sýnir að það eru a.m.k. 18 einstaklingar sem vistast í þjónusturýmum á Hlíð og í Kjarnalundi sem ættu að vera í hjúkrunarrýmum. Lagt er til að greitt verði fyrir 18 hjúkrunarrými til viðbótar stofnunum Akureyrarbæjar og að frá því dragist jafnframt fjárframlög vegna 18 þjónusturýma.
497     Reynslusveitarfélagið Hornafjörður.
        1.11
Hjúkrunarrými. Viðræður standa yfir við sveitarfélagið Hornafjörð um þjónustusamning um heilsugæslu- og öldrunarþjónustu í Austur-Skaftafellssýslu. Lög um reynslusveitarfélög falla úr gildi um næstu áramót og samningur við Hornafjörð sem gerður er á grundvelli þeirra laga. Meginmarkmið nýs samningsins er að efla stjórn sveitarfélagsins á málaflokknum, laga stjórnsýsluna betur að staðbundnum aðstæðum, bæta þjónustu við íbúana og nýta betur fjármagn hins opinbera. Áformað er að gera þjónustusamning um heilsugæslu- og öldrunarþjónustu á svæðinu. Í samningsdrögum er áætluð hækkun daggjalds í öldrunarþjónustu samtals 5,2 m.kr. miðað við 26 hjúkrunarrými. Er tekið mið af daggjaldataxta til annarra hjúkrunarheimila samkvæmt RAI-hjúkrunarþyngdarstuðli. Í samningsdrögum er enn fremur áformuð framtíðaruppbygging öldrunarþjónustu á svæðinu, en áætlanir eru um að byggja við hjúkrunarheimilið.
499     Hjúkrunarheimili.
        1.01 Almennur rekstur. Lagt er til 20 m.kr. framlag til að lagfæra daggjaldataxta þjónusturýma og/eða breyta þjónusturýmum í hjúkrunarrými.
500     Heilsugæslustöðvar, almennt.
        1.10
Heilsugæslustöðvar, almennt. Gerð er tillaga um 20 m.kr. framlag vegna fyrirhugaðs átaks á sviði geðheilbrigðismála. Geðsjúkdómar og geðraskanir eru á meðal algengustu sjúkdóma á Íslandi. Brýnt er að efla forvarnir á þessu sviði sem og þjónustu við þá sem haldnir eru þessum sjúkdómum. Einnig er farið fram á 20 m.kr. framlag til sama verkefnis á liðnum 08-370 Sjúkrahús með fjölþætta starfsemi.
             Þá er lögð er til 40 m.kr. hækkun á komugjöldum til heilsugæslustöðva en þau hafa ekki hækkað frá árinu 1996. Er gert ráð fyrir að útgjöld hækki um sömu fjárhæð og tekjurnar renni óskiptar til að styrkja rekstur heilsugæslustöðva, en nokkur rekstrarhalli er á heilsugæslunni í Reykjavík. Skipting þessarar fjárhæðar á heilsugæslustöðvar verður sýnd í sérstökum yfirlitum II í breytingartillögum meiri hlutans og verður færð á viðkomandi stofnanir í fjárlögum.
501     Sjúkraflutningar.
        1.11
Sjúkraflutningar. Veitt er 8,8 m.kr. framlag til að ljúka samningum við sýslumannsembættið á Selfossi um sjúkraflutninga í Árnessýslu. Svæðið er víðfemt og eitt það umfangsmesta sem er í umsjón eins aðila. Fyrir liggja drög að nýjum samningi en hann er sambærilegur við aðra samninga um sjúkraflutninga.

09 Fjármálaráðuneyti

        Lagt er til að fjárheimild fjármálaráðuneytis verði lækkuð um 800 m.kr.
381     Lífeyrisskuldbindingar, eftirlaun.
        1.01
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins. Lagt er til að fjárheimild viðfangsefnisins lækki um 680 m.kr. frá því sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu. Sú lækkun er í samræmi við endurskoðun á áætlun um breytingar á gjaldfærðum lífeyrisskuldbindingum ríkissjóðs árið 2002.
        1.02
Lífeyrissjóður alþingismanna. Lagt er til að fjárheimild viðfangsefnisins lækki um 15 m.kr. frá því sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu. Sú lækkun er í samræmi við endurskoðun á áætlun um breytingar á gjaldfærðum lífeyrisskuldbindingum ríkissjóðs árið 2002.
        1.03
Lífeyrissjóður ráðherra. Lagt er til að fjárheimild viðfangsefnisins lækki um 4 m.kr. frá því sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu. Sú lækkun er í samræmi við endurskoðun á áætlun um breytingar á gjaldfærðum lífeyrisskuldbindingum ríkissjóðs árið 2002.
        1.04
Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga. Lagt er til að fjárheimild viðfangsefnisins lækki um 64 m.kr. frá því sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu. Sú lækkun er í samræmi við endurskoðun á áætlun um breytingar á gjaldfærðum lífeyrisskuldbindingum ríkissjóðs árið 2002.
        1.06
Eftirlaunasjóður starfsmanna Útvegsbanka Íslands. Lagt er til að fjárheimild viðfangsefnisins lækki um 11 m.kr. frá því sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu. Sú lækkun er í samræmi við endurskoðun á áætlun um breytingar á gjaldfærðum lífeyrisskuldbindingum ríkissjóðs árið 2002.
        1.07
Eftirlaun fyrrum bankastjóra Útvegsbanka Íslands. Lagt er til að fjárheimild viðfangsefnisins lækki um 2 m.kr. frá því sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu. Sú lækkun er í samræmi við endurskoðun á áætlun um breytingar á gjaldfærðum lífeyrisskuldbindingum ríkissjóðs árið 2002.
        1.08
Eftirlaun hæstaréttardómara. Lagt er til að fjárheimild viðfangsefnisins lækki um 4 m.kr. frá því sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu. Sú lækkun er í samræmi við endurskoðun á áætlun um breytingar á gjaldfærðum lífeyrisskuldbindingum ríkissjóðs árið 2002.
        1.09
Lifeyrissjóðir sveitarfélaga vegna samrekstrarstofnana. Lagt er til að fjárheimild viðfangsefnisins lækki um 19 m.kr. frá því sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu. Sú lækkun er í samræmi við endurskoðun á áætlun um breytingar á gjaldfærðum lífeyrisskuldbindingum ríkissjóðs árið 2002.
        1.91
Aðrar lífeyrisskuldbindingar og eftirlaun. Lagt er til að fjárheimild viðfangsefnisins lækki um 1 m.kr. frá því sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu. Sú lækkun er í samræmi við endurskoðun á áætlun um breytingar á gjaldfærðum lífeyrisskuldbindingum ríkissjóðs árið 2002.
402     Fasteignamat ríkisins.
        6.02
Landskrá fasteigna. Lagt er til að fjárveiting til smíði Landskrár fasteigna lækki um 20 m.kr. en í frumvarpinu er gert ráð fyrir að framlagið hækki um sömu fjárhæð. Tillagan er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum.
481     Útgjöld samkvæmt heimildarákvæðum.
        6.01
Útgjöld samkvæmt heimildarákvæðum. Lagt er til að fjárheimild liðarins verði lækkuð um 100 m.kr. frá því sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu. Tillagan skýrist af áformum um lækkun útgjalda vegna verkefna á sviði íslenska upplýsingasamfélagsins. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að veitt verði sérstakt framlag að fjárhæð 231,5 m.kr. til þessara verkefna og að ýmsir fjárlagaliðir ráðuneyta leggi til mótframlög að fjárhæð 198,5 m.kr. þannig að samtals verði 430 m.kr. til ráðstöfunar. Fjárheimildirnar eru færðar á lið 996 Íslenska upplýsingasamfélagið hjá hverju ráðuneyti og eru verkefnin sem fá hlutdeild í sérstaka framlaginu valin af verkefnisstjórn átaksins um íslenska upplýsingasamfélagið. Ráðuneytin leggja fjárlagaliðnum til mótframlög af fjárheimildum viðkomandi stofnana sem nema a.m.k. helmingi kostnaðar fyrir utan verkefni sem teljast vera sameiginleg. Í þessari tillögu er gert ráð fyrir að sérstakt framlag til verkefnanna verði lækkað um 100 m.kr. Í heimildargrein er jafnframt gert ráð fyrir að lækkun fjárheimildanna verði færð yfir á liði 996 Íslenska upplýsingasamfélagið innan ársins þegar forgangsröð verkefna hefur verið endurskoðuð í ljósi þess að sérstaka framlagið verður minna. Er þá einnig gert ráð fyrir að mótframlög sem færð hafa verið milli liðanna og viðkomandi stofnana geti lækkað eða fallið niður. Tillagan er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum.
984     Fasteignir ríkissjóðs.
        1.11
Rekstur fasteigna og 5.21 Viðhald fasteigna. Lagt er til að sértekjur lækki um 75 m.kr. á viðfangsefni 1.11 Rekstur fasteigna. Á móti lækkar fjárheimild á viðfangsefni 5.21 Viðhald fasteigna um sömu fjárhæð. Tillagan felur í sér að veltuaukning stofnunarinnar verður minni en gert var ráð fyrir í frumvarpinu þar sem nú er fyrirhugað að farið verði hægar í sakirnar við að færa umsjón með fasteignum framhaldsskóla til stofnunarinnar. Tillagan er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum.
989     Launa- og verðlagsmál.
        1.90
Launa- og verðlagsmál. Gerð er tillaga um 300 m.kr. hækkun á fjárheimild þessa liðar. Skýrist það af launahækkunum sjúkraliða umfram það sem gert hefur verið ráð fyrir í forsendum frumvarpsins en nýr kjarasamningu við stéttarfélag þeirra tók gildi 1. nóvember sl. Skipting á fjárheimildum til stofnana vegna kjarasamningsins er sýnd í sérstökum yfirlitum IV í breytingartillögum meiri hlutans en þar er gert ráð fyrir að nýtt verði 261,1 m.kr. fjárheimild sem var fyrir hendi á þessum lið í frumvarpinu, auk hækkunarinnar sem fram kemur í tillögunni.
             Lagt er til að gerð verði almenn 1% hagræðingarkrafa til stjórnsýslustofnana ríkisins. Slík krafa skilar 180 m.kr. lækkun rekstrarútgjalda umfram það sem þegar hefur verið lagt til í frumvarpinu. Skipting á lækkun fjárveitinga er sýnd í sérstökum yfirlitum V í breytingartillögum meiri hlutans.

10 Samgönguráðuneyti

        Lagt er til að fjárheimild samgönguráðuneytis verði lækkuð um 89 m.kr.
190     Ýmis verkefni.
        1.44
Markaðssókn í íslenskri ferðaþjónustu. Farið er fram á 150 m.kr. tímabundið framlag í eitt ár til markaðssóknar í ferðaþjónustu, bæði innan lands og erlendis. Í kjölfar hryðjuverkanna í Bandaríkjunum 11. september sl. hefur orðið vart samdráttar í íslenskri ferðaþjónustu. Mikilvægt er að sporna við þessari þróun en ferðaþjónustan hefur skilað þjóðarbúinu vaxandi gjaldeyristekjum undanfarin ár.
        1.45
Söfn tengd samgöngum og ferðaþjónustu. Veitt er 5 m.kr. framlag til Norður-Siglingar á Húsavík til að styrkja rekstur, en eitt höfuðmarkmið félagsins er að kynna íslenska strandmenningu og varðveita ákveðna þætti hennar.
211     Vegagerðin.
        1.01
Yfirstjórn. Lögð er til 6 m.kr. hækkun á liðnum. Vegna breytinga á lögum nr. 73/2001, um fólksflutninga, vöruflutninga og efnisflutninga á landi, sem samþykktar voru á Alþingi með gildistöku 1. september sl. er gert ráð fyrir að útgjöld Vegagerðarinnar vegna eftirlits og útgáfu rekstrarleyfa til sérleyfishafa hækki um 6 m.kr. og verði samtals 9 m.kr. á ári. Kostnaður af leyfisveitingunum er borinn uppi af leyfisgjöldum og hefur verið gert ráð fyrir tekjum vegna þeirra á tekjuhlið fjárlaga.
        6.10
Nýframkvæmdir. Lögð er til 150 m.kr. tímabundin lækkun á framlagi til nýframkvæmda umfram það sem þegar er gert ráð fyrir í frumvarpinu. Tillagan er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum.
335     Siglingastofnun Íslands.
        6.70
Hafnamannvirki. Lögð er til 100 m.kr. tímabundin lækkun á framlagi til hafnamannvirkja umfram það sem þegar er gert ráð fyrir í frumvarpinu. Tillagan er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum.

11 Iðnaðarráðuneyti

        Lagt er til að fjárheimild iðnaðarráðuneytis verði lækkuð um 110 m.kr.
399     Ýmis orkumál.
        1.13
Hafsbotnsrannsóknir. Lögð er til 10 m.kr. lækkun á framlagi vegna frestunar hafbotnsrannsókna en í frumvarpinu er 70 m.kr. varið til verkefnisins. Tillagan er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum.
411     Byggðastofnun.
        6.41
Þátttaka í eignarhaldsfélögum á landsbyggðinni. Gerð er tillaga um niðurfellingu á 100 m.kr. framlagi vegna þátttöku ríkissjóðs í eignarhaldsfélögum á landsbyggðinni. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir 300 m.kr. til verkefnisins en það framlag hefur ekki verið nýtt nema að hluta undanfarin ár. Tillagan er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum.

12 Viðskiptaráðuneyti

        Lagt er til að fjárheimild viðskiptaráðuneytis verði óbreytt.
302     Löggildingarstofa.
        1.01
Löggildingarstofa. Lögð er til 10 m.kr. lækkun á framlögum ríkissjóðs til stofnunarinnar sem mætt verði með hærra hlutfalli ríkistekna sem innheimtar eru af notendum þjónustunnar. Tillagan er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum.

14 Umhverfisráðuneyti

        Lagt er til að fjárheimild umhverfisráðuneytis verði lækkuð um 152,5 m.kr.
190     Ýmis verkefni.
        1.58
Náttúrugripasöfn. Í samræmi við safnalög er lagt til að 3 m.kr. fjárveiting til náttúrugripasafna verði færð frá umhverfisráðuneyti til menntamálaráðuneytis á lið 02-918 Safnasjóður.
381     Ofanflóðasjóður.
        6.60
Ofanflóðasjóður. Lagt er til að framlag til Ofanflóðasjóðs lækki tímabundið um 160 m.kr. Tillagan er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar um aukið aðhald í útgjöldum.
403     Náttúrustofur.
        1.10
Náttúrustofa Neskaupstað. Lögð er til 3,5 m.kr. fjárveiting til rannsókna á hreindýrastofninum.
        1.12
Náttúrustofa Bolungarvík. Lögð er til 3,5 m.kr. fjárveiting til áframhaldandi rannsókna á Hornstrandafriðlandi.
        1.13
Náttúrustofa Stykkishólmi. Veitt er 3,5 m.kr. fjárveiting til rannsókna á minkastofninum.

SKÝRINGAR VIÐ BREYTINGARTILLÖGUR
VIÐ SUNDURLIÐUN 3 (B-HLUTA)


22 Menntamálaráðuneyti

201    Happdrætti Háskóla Íslands
        Miðað er við að fyrirhuguðum 400 m.kr. framkvæmdum Háskóla Íslands við Náttúrufræðihús sem gert var ráð fyrir að hefðust á miðju ári 2002 verði seinkað þannig að framkvæmt verði fyrir 200 m.kr. á árinu. Samkvæmt því er talið að Happdrætti Háskóla Íslands þurfi ekki að nýta 650 m.kr. lántökuheimild á árinu 2002, sem farið var fram á í frumvarpinu, heldur verði heimildin nýtt á árinu 2003.

971    Ríkisútvarpið
        Rekstraráætlun Ríkisútvarpsins hefur verið endurskoðuð. Í endurskoðaðri áætlun er tekið tillit til þess að menntamálaráðherra hefur samþykkt 7% hækkun afnotagjalda frá 1. janúar 2002 og er áætlað að tekjur af gjöldunum ásamt 1% fjölgun greiðenda milli ára skili Ríkisútvarpinu 2.155 m.kr. tekjum sem eru 250 m.kr. meiri tekjur en áætlað var fyrir í frumvarpinu. Reiknað er með 834 m.kr. tekjum af auglýsingum, kostun og annarri þjónustu sem er 121 m.kr. minni tekjur en reiknað var með í frumvarpinu, en álíka miklar tekjur og gert er ráð fyrir í nýjustu afkomuspá Ríkisútvarpsins fyrir yfirstandandi ár. Rekstrargjöld eru áætluð 2.987 m.kr. sem er 227 m.kr. meiri gjöld en áætlað var í frumvarpinu en 145 m.kr. hækkun frá nýjustu afkomuspá stofnunarinnar fyrir yfirstandandi ár. Meðal gjalda er áætlað fyrir 78,4 m.kr. afskrift á afnotagjöldum sem innheimtast ekki og 104,6 m.kr. framlagi til Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Gert er ráð fyrir að unnið verði að hagræðingu og breytingum í rekstri stofnunarinnar með það að markmiði að tekjur standi undir gjöldum, en ekki er talið raunhæft að gera ráð fyrir að aðgerðir skili sér að fullu á árinu 2002 þannig að jöfnuður náist á því ári. Ákveðið hefur verið að vinnuhópur á vegum stjórnarflokkanna vinni að tillögum um skipulagsbreytingar á Ríkisútvarpinu og breytingu á opinberri tekjuöflun til að standa undir rekstri þess. Fjármunatekjur eru áætlaðar tæpar 116 m.kr. en á móti koma fjármagnsgjöld að fjárhæð 264,9 m.kr. Samkvæmt framangreindri áætlun mun rekstrarhalli Ríkisútvarpsins nema 147 m.kr. samanborið við um það bil 300 m.kr. halla samkvæmt endurskoðaðri áætlun fyrir yfirstandandi ár.
             Meðal rekstrargjalda er áætlað fyrir 273 m.kr. afskrift fastafjármuna og til fjármagnsgjalda teljast 99 m.kr. vegna skuldabréfalána, en þessi gjöld hafa ekki áhrif á sjóðstreymi á árinu 2002. Gert er ráð fyrir að rekstrartengdar eignir aukist um 25 m.kr. umfram rekstrartengdar skuldir og að handbært fé frá rekstri nemi 200 m.kr. Miðað er við að 80 m.kr. af handbæru fé verði varið til fjárfestinga í dreifikerfi o.fl. en 120 m.kr. til þess að greiða af lánum sem stofnunin hefur tekið vegna lífeyrisskuldbindinga og fjárfestinga. Gert er ráð fyrir að stofnunin muni skulda 200 m.kr. í lok yfirstandandi árs og að staðan verði svipuð í lok ársins 2002.

974    Sinfóníuhljómsveit Íslands
        Framlag annarra rekstraraðila en ríkissjóðs hefur verið leiðrétt til hækkunar um 6,2 m.kr. þar sem það er vanáætlað í frumvarpinu. Miðað er við að 237,3 m.kr. framlag í A-hluta ríkissjóðs nemi 56% af útgjöldum sem sértekjur standa ekki undir þegar hækkun lífeyrisskuldbindinga sem ekki koma til greiðslu er frátalin. Framlag annarra rekstraraðila nemur 44% samkvæmt lögum um hljómsveitina eða 187,2 m.kr. Fram undan er uppgjör á lífeyrisskuldum vegna starfsmanna hljómsveitarinnar hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins með útgáfu skuldabréfs. Miðað er við að afkomubati sem leiðir af hærra framlagi verði nýttur til þess að lækka skuldir við lífeyrissjóðinn.

29 Fjármálaráðuneyti

101    Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins
        Samkvæmt lagafrumvarpi sem lagt hefur verið fram á Alþingi er fyrirhugað að taka upp lögbundið tóbaksgjald á heildsölustigi sem komi í stað samsvarandi álagningar í formi magngjalds á tóbaksvörur hjá Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins. Ríkissjóður hefur haft hlutdeild í hagnaði fyrirtækisins, sem að stærstum hluta hefur verið álagning á tóbak, en með tilliti til fyrrnefnds lagafrumvarps er framsetningu í fjárlagafrumvarpinu breytt þannig að skil á tóbaksgjaldinu, 3.200 m.kr., eru sýnd á sérstökum lið og aðgreind frá arðgreiðslu eða hlutdeild í hagnaði að öðru leyti. Þá hefur einnig verið lagt fram lagafrumvarp sem gerir ráð fyrir að tollur á tóbak falli niður til samræmis við skuldbindingar í EES-samningnum. Útsöluverðið lækkar þó ekki. Áætlað er að innkaupsverð til ÁTVR lækki um 400 m.kr. við þetta og hafa rekstrargjöld fyrirtækisins verið lækkuð sem því nemur. Þá hefur áætlun um tekjur fyrirtækisins verið endurskoðuð frá frumvarpinu og lækkuð um 300 m.kr. Loks er gert ráð fyrir að eftir að sett hafa verið lög um tóbaksgjald og skil á gjaldinu aðgreind frá öðrum hagnaði ríkissjóðs af fyrirtækinu muni það greiða arð til ríkissjóðs sem nemi um 7% af eigin fé í lok ársins á undan fjárlagaárinu og verður sú greiðsla 130 m.kr. samkvæmt frumvarpinu.

SKÝRINGAR VIÐ BREYTINGARTILLÖGUR
VIÐ SUNDURLIÐUN 4 (C-HLUTA)


42 Menntamálaráðuneyti

872    Lánasjóður íslenskra námsmanna
        Áætlun um rekstur sjóðsins hefur verið endurskoðuð enda hafa nokkrar forsendur breyst frá því að frumvarpið var lagt fram. Útlán sjóðsins eru nú áætluð 4.645 m.kr. sem er 5,7% aukning frá frumvarpi og 11% aukning frá áætluðum útlánum ársins 2001. Hækkun útlána sjóðsins skýrist af breytingum á gengi íslensku krónunnar, en ríflega helmingur útlána sjóðsins er bundinn í erlendum myntum. Jafnframt er gert ráð fyrir um 11% fjölgun lánþega á Íslandi og um 5% fjölgun námsmanna erlendis í samræmi við fjölgun umsókna hjá sjóðnum. Í frumvarpinu var miðað við 2% fjölgun milli ára. Breytingar á úthlutunarreglum sl. vor vegna tekjumeðhöndlunar og hærri tekjur lánþega en reiknað var með hafa meiri áhrif en gert var ráð fyrir í frumvarpinu. Árið 2002 eru lán vegna skólagjalda á Íslandi áætluð 230 m.kr. sem er um 90 m.kr. hækkun frá 2001. Fjárhæð markaðskjaralána er áætluð óbreytt frá fyrra ári, 85 m.kr.
             Fjármunatekjur eru áætlaðar 3.550 m.kr. í stað 3.400 m.kr. í frumvarpinu en þær eru taldar nema 4.100 m.kr. á árinu 2001. Fjármagnsgjöld eru áætluð 3.200 m.kr. í stað 2.950 m.kr. í frumvarpinu en þau eru talin verða 3.300 m.kr. á árinu 2001. Reiknuð gjöld vegna verðbreytinga eru talin nema 1.550 m.kr. í stað 1.400 m.kr. í frumvarpinu og 1.800 m.kr. á árinu 2001. Fjármunaliðir lækka milli ára vegna áætlaðrar lækkunar verðbreytinga á árinu 2002 miðað við árið 2001. Gert er ráð fyrir um 5% verðbreytingu á árinu 2002. Hreinar fjármunatekjur eru samkvæmt framantöldu áætlaðar neikvæðar um 1.711 m.kr. á árinu 2002 í stað stað 1.448 m.kr. samkvæmt frumvarpinu og 1.460 m.kr. samkvæmt nýjustu spá fyrir 2001. Framlag í afskriftasjóð útlána er áætlað 511 m.kr. á næsta ári í stað 498 m.kr. í frumvarpinu og 460 m.kr. samkvæmt spá fyrir yfirstandandi ár sem er sama hlutfall af nýjum útlánum og raunafskrift ársins 2000 og áætlun ársins 2001 gerir ráð fyrir.
             Áætlaður hagnaður sjóðsins er 582 m.kr. í stað 722 m.kr. samkvæmt spá fyrir árið 2001, en í frumvarpinu var reiknað með 858 m.kr. hagnaði. Ástæða reiknaðs hagnaðar af sjóðnum er sú að heildarútlán og heildarskuldir sjóðsins fara enn vaxandi. Framlag ríkissjóðs fer meðal annars til að mæta framtíðarútgjöldum sjóðsins vegna vaxtamunar á námslánum og teknum lánum og leiðir þannig til hagnaðar í rekstri þar til sjóðurinn kemst í jafnvægi.
             Ríkisendurskoðun hefur endurskoðað framlagsþörf LÍN að beiðni sjóðsins. Framlagsþörf er nú 49% af útlánum auk framlags vegna rekstrarkostnaðar. Framlag ríkissjóðs er því áætlað liðlega 49% af útlánum eða 2.284 m.kr., rekstrarkostnaður sjóðsins nemur 243 m.kr. án afskrifta og fjárfesting er áætluð 37 m.kr. Til frádráttar koma rekstrartekjur sjóðsins, 14 m.kr. Alls er því áætlað ríkisframlag 2.550 m.kr. sem er sama fjárhæð og áætlað er fyrir í frumvarpinu.
             Rekstrarkostnaður sjóðsins er áætlaður 263 m.kr. sem er 5 m.kr. hækkun frá frumvarpinu en tæplega 5% hækkun frá árinu 2001. Vegur þar þyngst hækkun vaxtastyrks til námsmanna sem er nú áætlaður 60 m.kr. í stað 50 m.kr. á árinu 2001, en styrkurinn var áætlaður 55 m.kr. í frumvarpinu. Gert er ráð fyrir 103 m.kr. launaútgjöldum, 88 m.kr. rekstrarútgjöldum, þar af 20 m.kr. vegna afskrifta, 5 m.kr. vegna málskotsnefndar og að umsjón jöfnunarstyrks kosti 7 m.kr. Fjárfesting sjóðsins er áætluð 37 m.kr. en endurnýjun hugbúnaðar sjóðsins er nú að hluta færð á fjárfestingu í stað rekstrar áður.
             Talið er að afborganir af veittum lánum sjóðsins nemi um 2.800 m.kr. sem er hækkun um 230 m.kr. frá fyrra ári, en 50 m.kr. hækkun frá áætlun í frumvarpinu. Er það til samræmis við áætlaða fjölgun greiðenda og launahækkanir milli ára. Gert er ráð fyrir að lántökuþörf sjóðsins muni nema 3.550 m.kr. sem ganga til greiðslu á eldri lánum. Lántökur eru hækkaðar um 150 m.kr. frá frumvarpinu vegna aukinna útlána sjóðsins og lækkunar hlutfalls ríkisframlags af útlánum. Afborganir af teknum lánum eru áætlaðar 2.850 m.kr. Alls er gert ráð fyrir að greiða í afborganir og vexti 4.400 m.kr. á árinu 2002. Gangi framangreind áætlun fyrir árið 2002 eftir mun sjóðsstaða á árinu lækka úr 418 m.kr. í ársbyrjun í 162 m.kr. í árslok 2002.

44 Landbúnaðarráðuneyti

823    Lánasjóður landbúnaðarins
        Í frumvarpinu var framlag úr A-hluta ríkisins að fjárhæð 195 m.kr. vegna tekna af búnaðargjaldi fært með öðrum rekstrartekjum. Þetta er leiðrétt.

45 Sjávarútvegsráðuneyti

811    Þróunarsjóður sjávarútvegsins
        Áætlað er fyrir 76 m.kr. hækkun á framlagi ríkissjóðs til Þróunarsjóðs sjávarútvegsins í samræmi við lagafrumvarp þar um. Annars vegar er um að ræða 64 m.kr. hækkun á þróunarsjóðsgjald á aflaheimildir og hins vegar hækkar þróunarsjóðsgjald á skip um 12 m.kr. Í frumvarpinu voru tekjur sjóðsins færðar undir aðrar rekstrartekjur en ekki undir framlagi úr ríkissjóði og er það leiðrétt.

47 Félagsmálaráðuneyti

201–215 Íbúðalánasjóður
        Nokkrar breytingar verða á fjármagnstekjum og fjármagnsgjöldum Íbúðalánasjóðs frá því sem áætlað er í frumvarpinu. Þar vega þyngst breyttar verðalagsforsendur fyrir árið 2002 og breytingar á rekstrarliðum, m.a. vegna útlánaaukningar sem koma til með að hafa áhrif á starfsemi sjóðsins á árinu 2002. Sú breyting er gerð frá fyrri framsetningu að áætluð afföll húsnæðisbréfa er sýnd sem breyting á rekstrartengdum eignum og skuldum á samnefndum lið. Við útreikning á áætluðum afföllum bréfa á næsta ári var miðað við 5,2% ávöxtunarkröfu að meðtaltali.

201 Íbúðalánasjóður, húsbréfadeild
        Gert er ráð fyrir að veitt löng lán verði 29.480 m.kr. en þau voru áætluð 26.186 m.kr. í frumvarpinu. Þá er gert ráð fyrir að afborganir af veittum löngum lánum aukist úr 5.655 m.kr. í 5.814 m.kr. Á móti er gert ráð fyrir að tekin löng lán verði 29.180 m.kr. en þau voru 25.924 m.kr. í frumvarpinu. Afborganir af teknum löngum lánum eru áætlaðar 13.793 m.kr. sem er 790 m.kr. hækkun. Þótt sjá megi merki þess að umsóknum vegna notaðra íbúða og vegna nýbygginga einstaklinga taki að fækka þá fjölgar enn umsóknum frá byggingarverktökum og umsóknum vegna endurbóta. Því er ekki gert ráð fyrir að það dragi að marki úr aukningu umsókna fyrr en nokkuð er liðið á árið 2002.

205 Íbúðalánasjóður, leiguíbúðir
        Heildarlánveitingar eru áætlaðar 7.900 m.kr. Þar af eru 7.500 m.kr. til leiguíbúða eins og gert var ráð fyrir í frumvarpinu en 400 m.kr. til lánveitinga vegna greiðsluerfiðleikalána. Í frumvarpinu var gert ráð fyrir 250 m.kr. til greiðsluerfiðleikalána en lagt er til að heimild verði veitt fyrir 150 m.kr. aukinni lánsfjárheimild í þessu skyni. Þá hækka tekin löng lán í 10.680 m.kr. en þau voru 10.162 m.kr. í frumvarpinu. Áætluð afföll húsnæðisbréfa eru sýnd sem breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum á samnefndum lið og nema þau 2.739 m.kr.

211 Íbúðalánasjóður, viðbótarlán
        Veruleg aukning hefur verið í umsóknum viðbótarlána og er gert ráð fyrir að umsóknir verði nokkru fleiri en gert var ráð fyrir í upphaflegum áætlunum. Þótt sjá megi merki þess að tekið sé að draga úr aukningu í húsbréfakerfinu er enn umtalsverð eftirspurn eftir viðbótarlánum enda er samsetning umsækjenda eftir þeim lánum nokkuð önnur en eftir húsbréfalánum. Þá er vert að vekja athygli á að viðbótarlán eru veitt að beiðni húsnæðisnefnda sveitarfélaga og á ábyrgð sveitarfélaga. Áætlað er að veitt löng lán verði 3.710 m.kr. á árinu 2002 sem er 630 m.kr. hækkun frá frumvarpi. Gert er ráð fyrir að tekin löng lán hækki um 655 m.kr. og verði 4.970 m.kr. Áætluð afföll húsnæðisbréfa eru sýnd sem breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum á samnefndum lið og nema þau 1.227 m.kr.

215    Íbúðalánasjóður, byggingarsjóðir ríkisins og verkamanna
        Í frumvarpinu var ekki gert ráð fyrir að selja þyrfti húsbréf til að fjármagna byggingarsjóði ríkisins og verkamanna. Í ljósi endurmats er hins vegar talið nauðsynlegt að endurfjármagna þurfi sjóðina með sölu húsbréfa að fjárhæð 7.570 m.kr. og afborganir af teknum löngum lánum aukist úr 10.849 m.kr. í 11.718 m.kr. Áætluð afföll húsnæðisbréfa eru sýnd sem breytingar á rekstrartengdum eignum og skuldum á samnefndum lið og nema þau 1.870 m.kr.

51 Iðnaðarráðuneyti

411 Byggðastofnun
        Framlag ríkisins í A-hluta fjárlaga lækkar um 101,7 m.kr. vegna aðhalds í ríkisrekstri til að fylgja eftir afkomumarkmiði ríkisstjórnarinnar. Þar af lækkar framlag til eignarhaldsfélaga á landsbyggðinni um 100 m.kr. og nemur það eftir þá breytingu 200 m.kr. auk þess sem miðað er við að hagræðing í rekstri skili 1,7 m.kr. lækkun útgjalda.

SKÝRINGAR VIÐ BREYTINGARTILLÖGUR VIÐ 5. GR.

    Gerð er tillaga um að ríkissjóði verði heimilað að auka endurlán sín til Lánasjóðs íslenskra námsmanna um 150 m.kr. og að heildarlánveitingar til sjóðsins verði 3.550 m.kr. og breytist samtala yfir lánveitingar á liðnum samsvarandi og verður 4.630 m.kr. Skýringin á því að farið er fram á aukna lánsfjárheimild er fjölgun nemenda og gengisbreytingar.
    Þá er gerð tillaga um nokkrar breytingar á lánsfjárheimildum Íbúðalánasjóðs í ljósi endurskoðunar á útlánum á þessu ári og því næsta og endurskoðunar á sjóðstreymi einstakra lánaflokka. Í fyrsta lagi er lagt til að lántökuheimild húsbréfadeildar verði aukin um tæplega 3,3 milljarða kr. Þá er lagt til að lántökur til að fjármagna lán til leiguíbúða hækki um rúmlega 500 m.kr. og að lántökur til að fjármagna útlán sem veitt eru á ábyrgð sveitarfélaganna til viðbótarlána verði auknar um rúmar 650 m.kr. Loks er lagt til að við bætist ný heimild til Íbúðalánasjóðs sem er samhljóða heimild sem sjóðurinn hefur haft síðustu ár til endurfjármögnunar á Byggingarsjóði ríkisins og verkamanna. Lagt er til að sú heimild verði 7,5 milljarðar kr. og fari alfarið til endurfjármögnunar, þ.e. til að jafna mun á innheimtum afborgunum og vaxtatekjum sjóðanna og greiddum afborgunum af teknum lánum auk vaxtagjalda.


SKÝRINGAR VIÐ BREYTINGARTILLÖGUR VIÐ 6. GR.

    Lögð er til ein breyting á 6. gr. frumvarpsins sem varðar tekjur af sérstökum eignarskatti. Samkvæmt lögum um Þjóðarbókhlöðu og endurbætur menningarbygginga skulu tekjur af sérstökum eignarskatti renna í sjóð sem varið er til að standa straum af kostnaði við endurbætur á húsakosti menningarstofnana o.fl. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að þrátt fyrir þau lög skuli tekjur umfram 385 m.kr. renna í ríkissjóð en hér er lagt til að tekjur umfram 335 renni í ríkissjóð. Er þetta samhljóða breytingum sem lagðar eru til í frumvarpi til laga um ráðstafanir í ríkisfjármálum sem lagt hefur verið fram á Alþingi.

    Meiri hlutinn leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum þeim sem skýrðar hafa verið og gerð er tillaga um í sérstökum þingskjölum.

Alþingi, 5. des. 2001.



Ólafur Örn Haraldsson,


form., frsm.


Einar Oddur Kristjánsson.


Kristján Pálsson.



Ísólfur Gylfi Pálmason.


Arnbjörg Sveinsdóttir.


Tómas Ingi Olrich.



Drífa Hjartardóttir.





Fylgiskjal.


Álit

um 1. gr. frv. til fjárlaga fyrir árið 2002, sbr. sundurliðun 1, og áhrif skattalagabreytinga á tekjur ríkissjóðs.

Frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar.



    Í samræmi við 2. mgr. 25. gr. laga nr. 55/1991, um þingsköp Alþingis, hefur nefndin fjallað um 1. gr. fjárlagafrumvarps fyrir árið 2002, sbr. sundurliðun 1, og áhrif skattalagabreytinga á tekjur ríkissjóðs. Nefndin fékk á sinn fund Bolla Þór Bollason frá efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytis og Þórð Friðjónsson og Katrínu Ólafsdóttur frá Þjóðhagsstofnun.
    Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2002 voru heildartekjur ríkissjóðs áætlaðar 257,9 milljarðar kr. Þessi áætlun hefur nú verið endurskoðuð. Enn fremur hafa þjóðhagsforsendur fyrir árin 2001 og 2002 breyst nokkuð frá því sem gengið var út frá í fjárlagafrumvarpi síðastliðið haust.
    Að öllu samanlögðu er nú talið að tekjur ríkissjóðs á árinu 2002 muni nema 257,9 milljörðum kr. sem er sama fjárhæð og upphaflega var gert ráð fyrir í fjárlagafrumvarpi. Hins vegar er gert ráð fyrir töluverðum frávikum milli einstakra tekjuliða. Þau koma einkum fram í því að gert er ráð fyrir að veltuskattar skili u.þ.b. 2,5 milljörðum kr. minni tekjum en upphaflega var gengið út frá í fjárlagafrumvarpi. Þar vegur virðisaukaskattur þyngst. Á móti kemur hins vegar að gert er ráð fyrir auknum tekjum á öðrum sviðum og vegur tekjuskattur einstaklinga þar þyngst, en gert er ráð fyrir að hann skili tæpum 1,3 milljörðum kr. til ríkissjóðs á árinu 2002. Jafnframt er gert ráð fyrir að tryggingagjald muni skila ríkissjóði 800 millj. kr. meira en gert var ráð fyrir á næsta ári og fjármagnstekjuskattur 1 milljarði kr. meira en gert var ráð fyrir í fjárlagafrumvarpi. Gert er ráð fyrir að bifreiðagjald verði hækkað á árinu 2002 um sem nemur 260 millj. kr., eða um 10%. Þá hefur verið tekin ákvörðun um að hækka áfengisgjald og er gert ráð fyrir að sú hækkun muni skila ríkissjóði 450 millj. kr.
    Þær skattalagabreytingar sem fyrirhugaðar eru og koma til framkvæmda á árinu 2002 lúta einkum að lækkun á skatthlutfalli tekjuskatts einstaklinga og hækkun á fríeignamörkum í eignarskatti einstaklinga. Samtals munu þessar breytingar hafa í för með sér 2,250 millj. kr. áhrif til lækkunar á tekjum ríkissjóðs, en á árinu 2002 er alls gert fyrir 3 milljarða kr. tekjulækkun ríkissjóðs vegna skattalagabreytinga.
    Helstu breytingar efnahagsforsendna sem varða tekjuáætlun fyrir árið 2002 eru að gert er ráð fyrir að einkaneysla dragist saman um 1% í stað þess að haldast óbreytt milli ára. Meginskýringin á þessu er að áætlanir fjármálaráðuneytisins gera ráð fyrir 1% hærri verðbólgu en áður, eða 6%, sem fyrst og fremst stafar af 5–6% lægra gengi. Þá er reiknað með að kaupmáttur haldist nær óbreyttur á árinu 2002.
    Spáð er að landsframleiðsla dragist saman um 1% á árinu 2002 en hagvöxtur glæðist síðan á ný og verði 3% á árinu 2003 að því tilskildu að ráðist verði í framkvæmdir vegna álvera og virkjana. Líkur eru á að viðskiptahalli muni nema 38 milljörðum kr. á árinu 2002, en á árinu 2001 er talið að hann verði um 49 milljarðar kr. Miðað við þessa spá mun viðskiptahallinn því fara í tæplega 5% af landsframleiðslu.
    Gunnar Birgisson var fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 5. des. 2001.


Vilhjálmur Egilsson, form.


Einar K. Guðfinnsson.
Kristinn H. Gunnarsson.
Sigríður A. Þórðardóttir.
Magnús Stefánsson.