Ferill 353. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 489  —  353. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um hækkun vaxta af lánum Íbúðalánasjóðs á íbúðum í eigu eldri borgara.

Frá Sverri Hermannssyni.



     1.      Hvaða rök lágu til þess að hækkaðir voru vextir 1. september sl. af lánum Íbúðalánasjóðs til húsnæðissamvinnufélagsins Búmanna sem aðallega er félagsskapur eldri borgara?
     2.      Er fyrirhugað að hækka þessa vexti enn frekar?


Skriflegt svar óskast.