Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 584, 127. löggjafarþing 313. mál: lífræn landbúnaðarframleiðsla (EES-reglur).
Lög nr. 150 21. desember 2001.
Landbúnaðarráðherra setur reglugerð þar sem tilgreindar eru lágmarkskröfur sem gerðar eru til vottaðra lífrænna framleiðsluhátta við íslenskar aðstæður í samræmi við grunnreglur Alþjóðasamtaka lífrænna landbúnaðarhreyfinga (IFOAM) og skuldbindingar Íslands skv. I. og II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið.
Hver sá sem brýtur gegn ákvæðum laga þessara eða reglna settra samkvæmt þeim skal sæta sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. Sektir renna í ríkissjóð.
Með mál samkvæmt þessari grein skal farið að hætti opinberra mála, sbr. lög um meðferð opinberra mála, nr. 19/1991.
Þingskjal 584, 127. löggjafarþing 313. mál: lífræn landbúnaðarframleiðsla (EES-reglur).
Lög nr. 150 21. desember 2001.
Lög um breytingar á lögum nr. 162/1994, um lífræna landbúnaðarframleiðslu.
l. gr.
6. gr. laganna orðast svo:Landbúnaðarráðherra setur reglugerð þar sem tilgreindar eru lágmarkskröfur sem gerðar eru til vottaðra lífrænna framleiðsluhátta við íslenskar aðstæður í samræmi við grunnreglur Alþjóðasamtaka lífrænna landbúnaðarhreyfinga (IFOAM) og skuldbindingar Íslands skv. I. og II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið.
2. gr.
7. gr. laganna orðast svo:Hver sá sem brýtur gegn ákvæðum laga þessara eða reglna settra samkvæmt þeim skal sæta sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. Sektir renna í ríkissjóð.
Með mál samkvæmt þessari grein skal farið að hætti opinberra mála, sbr. lög um meðferð opinberra mála, nr. 19/1991.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 13. desember 2001.