Ferill 159. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 608 — 159. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um náttúruvernd, nr. 44/1999.
(Eftir 2. umr., 14. des.)
1. gr.
a. Við bætist nýr töluliður, 2. tölul., sem orðast svo: Búsvæði: Þeir staðir eða svæði þar sem tegund getur þrifist.
b. Í stað orðanna „Lífverur, búsvæði þeirra og vistkerfi“ í b-lið 5. tölul. kemur: Lífverur, búsvæði þeirra, vistgerðir og vistkerfi.
c. Við bætist nýr töluliður, 9. tölul., sem orðast svo: Vistgerðir: Staðir eða svæði með ákveðnum einkennum, t.d. hvað varðar gróður- og dýralíf, jarðveg og loftslag.
2. gr.
3. gr.
4. gr.
Umhverfisþing.
Á umhverfisþingi skal fjalla um umhverfis- og náttúruvernd og sjálfbæra þróun. Fjórða hvert ár skal á umhverfisþingi fjalla um aðgerðaáætlanir um sjálfbæra þróun. Til umhverfisþings skal boða alþingismenn, fulltrúa stofnana ríkis og sveitarfélaga og fulltrúa atvinnulífs og frjálsra félagasamtaka sem hafa umhverfisvernd og sjálfbæra þróun á stefnuskrá sinni.
Seta á þinginu er ólaunuð, en hlutaðeigandi aðilar greiða kostnað fulltrúa. Annar nauðsynlegur kostnaður af þinghaldinu greiðist úr ríkissjóði samkvæmt ákvörðun umhverfisráðherra.
5. gr.
Í stað tilvísunarinnar „7. tölul. 3. gr.“ í 2. mgr. 14. gr. og 4. mgr. 20. gr. laganna kemur: 8. tölul. 3. gr.
6. gr.
Tilvísunin „nr. 10/1965“ í 2. mgr. 23. gr. laganna fellur brott.
7. gr.
8. gr.
9. gr.
D-liður 50. gr. laganna orðast svo: friðlýstar lífverur, búsvæði, vistgerðir og vistkerfi, sbr. 3. tölul. 1. mgr. 53. gr. og 1. mgr. 54. gr.
10. gr.
11. gr.
Í stað orðanna „Lífverur, búsvæði þeirra og vistkerfi“ í 3. tölul. 1. mgr. 53. gr. laganna kemur: Lífverur, búsvæði þeirra, vistgerðir og vistkerfi.
12. gr.
13. gr.
a. Í stað orðanna „búsvæði þeirra“ í 1. mgr. kemur: búsvæði þeirra, vistgerðir.
b. 1. málsl. 2. mgr. orðast svo: Áætlun skal m.a. taka til helstu tegunda vistgerða og vistkerfa hér á landi, svo og jarðmyndana.
c. Í stað orðsins „búsvæða“ í b-lið 2. mgr. kemur: vistgerða.
14. gr.
15. gr.
16. gr.