Ferill 410. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 669 — 410. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegsráðherra um fiskiskip sem leigðu til sín aflaheimildir á fiskveiðiárinu 2000/2001.
Frá Kristjáni Pálssyni.
1. Hve mörg fiskiskip leigðu til sín aflaheimildir á fiskveiðiárinu 2000/2001?
2. Hve mikinn afla leigðu skipin og hver er heimahöfn þeirra, sundurliðað eftir sveitarfélögum?
3. Hve miklar varanlegar aflaheimildir eru á þessum skipum, sundurliðað eftir sveitarfélögum?
4. Hvaðan er aflinn leigður, sundurliðað eftir sveitarfélögum?
Skriflegt svar óskast.