Ferill 413. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 672  —  413. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um fjárhagsstöðu sveitarfélaga.

Frá Steingrími J. Sigfússyni.



     1.      Hverjar telur ráðherra vera helstu skýringar á versnandi fjárhagsstöðu fjölmargra sveitarfélaga, sbr. mat eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga?
     2.      Hyggst ríkisstjórnin grípa til sérstakra aðgerða í ljósi nýjustu upplýsinga um afkomu sveitarfélaganna?