Ferill 445. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 714  —  445. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegsráðherra um kostnað við stjórn fiskveiða.

Frá Gísla S. Einarssyni.



     1.      Hver er heildarkostnaður við eftirlit með fiskveiðistjórnarkerfinu á ársgrundvelli?
     2.      Hvernig skiptist kostnaðurinn eftir útgerðarflokkum, sundurliðað eftir skilgreiningu veiðileyfa?
     3.      Hversu mörg ársverk eru við eftirlit með fiskveiðiflotanum?
    Óskað er yfirlits yfir árin 1999–2001.


Skriflegt svar óskast.