Ferill 448. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 717 — 448. mál.
Fyrirspurn
til samgönguráðherra um samstarf við Grænlendinga í flugmálum.
Frá Steingrími J. Sigfússyni.
1. Hefur ráðherra boðið eða hyggst hann bjóða grænlenskum samgönguyfirvöldum til viðræðna um samstarf í flugmálum í framhaldi af hugmyndum um að gera Keflavíkurflugvöll að skiptistöð fyrir millilandaflug til og frá Grænlandi?
2. Hvaða möguleika sér ráðherra á því að auka vægi Íslands sem tengipunkts samgangna á Norðvestur-Atlantshafssvæðinu og notkun flugvalla eins og á Akureyri, Egilsstöðum og í Keflavík í því sambandi?