Ferill 495. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 785 — 495. mál.
Fyrirspurn
til landbúnaðarráðherra um verðmyndun á kindakjöti.
Frá Sigríði Jóhannesdóttur.
Hvernig er háttað verðmyndun á kindakjöti frá bónda til stórmarkaðar og hversu margar krónur koma í hlut hvers milliliðar þegar haft er í huga að nú kostar 1 kg af kindakjöti sem selt er í hálfum skrokkum 680 kr. í einum af stórmörkuðunum?
Skriflegt svar óskast.