Ferill 498. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 788  —  498. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um úrbætur í fjarskiptamálum á Norðausturlandi.

Frá Steingrími J. Sigfússyni.



     1.      Eru fyrirhugaðar á næstunni aðgerðir af hálfu Landssíma Íslands hf. eða hins opinbera til að koma á ljósleiðarasambandi við alla þéttbýlisstaði á Norðausturlandi eða tryggja fullnægjandi öryggi og flutningsgetu grunnnetsins með einhverjum öðrum aðgerðum?
     2.      Hvað kosta nauðsynlegar aðgerðir af því tagi sem að framan greinir og í hverju yrðu þær fólgnar?