Ferill 513. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 811 — 513. mál.
Fyrirspurn
til sjávarútvegsráðherra um kræklingarækt.
Frá Karli V. Matthíassyni.
1. Hversu víða er kræklingarækt stunduð á Íslandi og í hve miklum mæli?
2. Hvernig hefur kræklingarækt verið styrkt og efld af opinberum aðilum?
3. Hver er framtíðarsýn sjávarútvegsráðuneytisins í þessum efnum?
4. Hafa opinberir aðilar áform um að efla á einhvern hátt kræklingarækt við strendur landsins?
Prentað upp.