Ferill 524. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 826  —  524. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um markað fyrir íslenska tónlist erlendis.

Frá Guðrúnu Ögmundsdóttur.



     1.      Hver er afstaða ráðherra til hugmynda um þróunarsjóð tónlistariðnaðarins?
     2.      Mun ráðherra beita sér fyrir því að slíkum sjóði verði komið á laggirnar eða hefur hann aðrar hugmyndir um aðgerðir til að vinna markaði fyrir íslenska tónlist erlendis? Ef svo er, í hverju felast þær hugmyndir?


Skriflegt svar óskast.