Ferill 533. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 837 — 533. mál.
Fyrirspurn
til menntamálaráðherra um framhaldsskólann í Vestmannaeyjum.
Frá Margréti Frímannsdóttur.
1. Hefur farið fram athugun á húsnæði framhaldsskólans í Vestmannaeyjum með tilliti til
a. nemendafjölda skólans,
b. viðhalds húsnæðisins,
c. þarfar á viðbótarhúsnæði?
2. Ef svo er, hver var niðurstaða könnunarinnar, og ef úrbóta er þörf, hvaða áætlanir hafa verið gerðar til að mæta þeim?
Skriflegt svar óskast.