Ferill 549. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 857 — 549. mál.
Frumvarp til laga
um opinberan stuðning við vísindarannsóknir.
(Lagt fyrir Alþingi á 127. löggjafarþingi 2001–2002.)
I. KAFLI
Markmið.
1. gr.
II. KAFLI
Úthlutunarsjóðir.
2. gr.
Rannsóknasjóður og Tækjasjóður.
Hlutverk Tækjasjóðs er að veita rannsóknastofnunum styrki til kaupa á dýrum tækjum og búnaði vegna rannsókna. Við úthlutun úr Tækjasjóði skal taka mið af úthlutunarstefnu Rannsóknasjóðs á hverjum tíma.
Rannsóknasjóður tekur við hlutverki Vísindasjóðs og Tæknisjóðs sem nú starfa samkvæmt lögum um Rannsóknarráð Íslands, nr. 61/1994, en Tækjasjóður tekur við hlutverki Bygginga- og tækjasjóðs samkvæmt sömu lögum. Eignir og skuldbindingar Vísindasjóðs og Tæknisjóðs falla til Rannsóknasjóðs en eignir og skuldbindingar Bygginga- og tækjasjóðs falla til Tækjasjóðs.
3. gr.
Tekjur Rannsóknasjóðs.
1. Fjárveiting á fjárlögum ár hvert.
2. Tekjur af einkaleyfum eða endurgreiðslur af styrkjum til verkefna sem notið hafa stuðnings sjóðsins.
3. Gjafir frá einstaklingum eða fyrirtækjum.
4. Önnur framlög.
Tekjur Tækjasjóðs eru:
1. Einkaleyfisgjald af rekstri peningahappdrætta eða aðrar sambærilegar tekjur.
2. Önnur framlög.
4. gr.
Stjórn Rannsóknasjóðs.
Stjórn Rannsóknasjóðs skal jafnframt fara með stjórn Tækjasjóðs.
Stjórnin metur umsóknir um styrk úr Rannsóknasjóði að fengnum umsögnum fagráða sem skipuð eru skv. 5. gr. Stjórnin leitar ráðgjafar umfram það sem fagráð sjóðsins geta veitt ef þurfa þykir að mati stjórnarinnar. Fagráð skipað formönnum fagráða Rannsóknasjóðs metur umsóknir í Tækjasjóð áður en stjórn sjóðsins tekur þær til afgreiðslu.
Ef til atkvæðagreiðslu kemur innan stjórnar Rannsóknasjóðs og atkvæði falla jafnt ræður atkvæði formanns.
Ákvarðanir stjórnar Rannsóknasjóðs og Tækjasjóðs um styrkveitingar samkvæmt lögum þessum sæta ekki stjórnsýslukæru.
Kostnaður við mat á umsóknum og við störf stjórnar Rannsóknasjóðs og Tækjasjóðs skal greiddur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðanna. Stjórn Rannsóknasjóðs er heimilt að veita viðurkenningar fyrir framúrskarandi árangur í vísindarannsóknum af ráðstöfunarfé Rannsóknasjóðs.
5. gr.
Fagráð Rannsóknasjóðs.
Fagráð skulu vera skipuð allt að sjö einstaklingum með víðtæka reynslu af rannsóknum. Skulu þeir hvorki sitja í Vísinda- og tækniráði né stjórn Rannsóknasjóðs. Fagráð metur umsóknir út frá færni umsækjenda til að framkvæma verkið og aðstöðu þeirra til þess. Jafnframt skal lagt mat á vísindagildi rannsóknanna á alþjóðlegan mælikvarða eða líkur á skráningu einkaleyfis eða hugverkaréttinda eftir því sem við á.
Stjórn Rannsóknasjóðs setur fagráðum erindisbréf.
6. gr.
Rannsóknarnámssjóður.
Menntamálaráðherra skipar þriggja manna stjórn sjóðsins til þriggja ára í senn. Í sjóðstjórn skulu eiga sæti fulltrúi tilnefndur af samstarfsnefnd háskólastigsins og tveir fulltrúar skipaðir af ráðherra án tilnefningar og skal annar þeirra jafnframt vera formaður stjórnar sjóðsins. Varamenn eru skipaðir á sama hátt.
Ákvarðanir stjórnar Rannsóknarnámssjóðs sæta ekki stjórnsýslukæru.
7. gr.
Tekjur Rannsóknarnámssjóðs.
Heimilt er stjórn Rannsóknarnámssjóðs að efna til samstarfs við einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir um fjármögnun sérstakra styrkja til rannsóknatengds framhaldsnáms á afmörkuðum sviðum rannsókna.
8. gr.
Úthlutunarreglur.
Stjórn Rannsóknarnámssjóðs gefur út úthlutunarreglur fyrir sjóðinn eigi síðar en sex vikum fyrir lok umsóknarfrests.
Niðurstöður rannsókna, sem kostaðar eru með styrkjum úr Rannsóknasjóði og Rannsóknarnámssjóði, skulu birtar opinberlega og vera öllum opnar nema um annað sé samið.
9. gr.
Önnur verkefni.
III. KAFLI
Þjónustumiðstöð vísindarannsókna.
10. gr.
Hlutverk.
1. Annast umsýslu Rannsóknasjóðs, Tækjasjóðs, Rannsóknarnámssjóðs og annarra sjóða samkvæmt nánari ákvörðun menntamálaráðherra. Undir þetta fellur skrifstofuþjónusta við stjórn og fagráð viðkomandi sjóða.
2. Annast gagnasöfnun og miðlun upplýsinga fyrir Vísinda- og tækniráð. Í því felst meðal annars að:
a. annast söfnun og úrvinnslu upplýsinga um vísindarannsóknir í landinu, svo sem um mannafla, fjármagn, viðfangsefni og árangur,
b. gangast fyrir mati á árangri rannsóknastarfs með reglulegum hætti,
c. veita Vísinda- og tækniráði og nefndum þess upplýsingar um stöðu vísindarannsókna í landinu þegar þess er óskað,
d. annast kynningu á rannsóknastarfsemi,
e. annast kynningu og ráðgjöf fyrir einstaklinga og fyrirtæki á styrkjum og rannsóknarverkefnum innan lands og utan,
f. hafa samstarf við hliðstæðar erlendar stofnanir eða skrifstofur.
3. Sinna öðrum verkefnum sem Vísinda- og tækniráð eða menntamálaráðherra felur stofnuninni.
11. gr.
Forstöðumaður.
IV. KAFLI
Ýmis ákvæði.
12. gr.
Gildistaka.
13. gr.
Breyting á öðrum lögum.
Ákvæði til bráðabirgða.
I.
Þeir sem þegið hafa styrk samkvæmt lögum nr. 61/1994, um Rannsóknarráð Íslands, halda óbreyttum réttindum og skyldum samkvæmt þeim styrkveitingum.
Rannsóknarráð Íslands samkvæmt lögum nr. 61/1994 skal vinna að undirbúningi tillagna að úthlutunarreglum skv. 8. gr. laga þessara, um styrkveitingar á árinu 2003, þó eigi lengur en til 1. september 2002.
Núverandi stjórn Rannsóknarnámssjóðs sem skipuð var samkvæmt lögum nr. 61/1994 skal halda umboði sínu og starfa í samræmi við ákvæði laga þessara út skipunartímabil sitt.
Samningar við þá sem ráðnir hafa verið í tímbundnar stöður rannsóknarprófessora samkvæmt lögum nr. 61/1994 halda gildi sínu í samræmi við ákvæði þeirra.
II.
Skipað skal í stjórn Rannsóknasjóðs samkvæmt lögum þessum eigi síðar en 1. september 2002.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Lög um Rannsóknarráð Íslands tóku gildi 1. júlí 1994. Samkvæmt þeim bar að endurskoða þau innan fimm ára frá gildistöku þeirra. Á undanförnum missirum hafa starfsmenn menntamálaráðuneytisins unnið að endurskoðun laganna. Leiddi sú endurskoðun til þess að lögð eru fram þrjú frumvörp sem taka til vísindarannsókna og nýsköpunar atvinnulífsins á Íslandi. Í fyrsta lagi er frumvarp til laga um Vísinda- og tækniráð sem lagt er fram af forsætisráðherra, í öðru lagi frumvarp til laga um opinberan stuðning við vísindarannsóknir sem lagt er fram af menntamálaráðherra og í þriðja lagi frumvarp til laga um opinberan stuðning við tækniþróun og nýsköpun í þágu atvinnulífsins sem lagt er fram af iðnaðarráðherra.
Í frumvarpi til laga um Vísinda- og tækniráð er gert ráð fyrir að ráðið fjalli bæði um vísindarannsóknir og tækniþróun. Vísindarannsóknir heyri undir menntamálaráðherra en tækniþróun og nýsköpun undir iðnaðarráðherra. Frumvarp þetta fjallar um opinberan stuðning við vísindarannsóknir í samræmi við framangreinda skiptingu og er háð því að frumvarp til laga um Vísinda- og tækniráð verði að lögum.
Helstu nýmæli frumvarpsins eru:
Lagt er til að nýr sjóður, Rannsóknasjóður taki við hlutverki Vísindasjóðs og Tæknisjóðs samkvæmt núgildandi lögum um Rannsóknarráð Íslands, nr. 61/1994. Stjórn Rannsóknasjóðs tekur við hlutverki því sem úthlutunarnefndir höfðu áður. Þá er lagt til að Tækjasjóður taki við hlutverki Bygginga- og tækjasjóðs samkvæmt sömu lögum. Einnig er lagt til að Þjónustumiðstöð vísindarannsókna taki við meginhluta þeirrar starfsemi sem nú er unnin af skrifstofu Rannsóknarráðs Íslands samkvæmt sömu lögum. Hins vegar er lagt til að Rannsóknarnámssjóður starfi áfram.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að grunnrannsóknir og hagnýtar rannsóknir heyri áfram undir menntamálaráðuneytið. Rannsóknasjóður mun gegna lykilhlutverki varðandi styrkveitingar til vísindarannsókna. Sjóðurinn mun styrkja rannsóknir samkvæmt skýrum kröfum um vísindalegan framgang, birtingu og skil á vísindalegum niðurstöðum, hvort sem tilgangur er hagnýtur eða ekki. Hin óþörfu mörk milli sjóðanna sem hindrað hafa samanburð umsókna vegna mismunandi uppruna þeirra munu hverfa. Áhersla verður lögð á að rannsóknir séu styrktar eftir gæðum sem metin verða samkvæmt faglegum kröfum á viðkomandi sviði. Með þessu er verið að tryggja að sambærileg viðmið gildi við mat á umsóknum um styrki, hvort sem um er að ræða grunnrannsóknir eða hagnýtar rannsóknir.
Gert ráð fyrir að Tækjasjóður taki við hlutverki Bygginga- og tækjasjóðs. Lagt er til að hlutverk Tækjasjóðs verði að veita rannsóknastofnunum styrki til kaupa á dýrum tækjum og búnaði vegna rannsókna. Það er nýlunda í þessu frumvarpi að sömu aðilar sitji í stjórn Rannsóknasjóðs og stjórn Tækjasjóðs og úthluti styrkjum á þann hátt sem hér er lagt til. Með því að hafa sömu stjórn í báðum sjóðunum er leitast við að samþætta úthlutanir Tækjasjóðs við úthlutanir úr Rannsóknasjóði.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að Rannsóknarnámssjóður styrki rannsóknatengt framhaldsnám til meistara- eða doktorsgráðu við íslenska skóla á háskólastigi sem bjóða framhaldsnám og stunda vísindalegar rannsóknir. Gert er ráð fyrir að einungis nemendur sem stunda framhaldsnám við íslenska háskóla geti fengið styrk úr sjóðnum. Þetta er nýlunda. Í núverandi reglum um Rannsóknarnámssjóð nr. 974/2000 er unnt fyrir nemanda að fá styrk úr sjóðnum þó að hann stundi nám í erlendum háskóla, svo framarlega sem rannsóknarverkefnið fjallar um íslenskt viðfangsefni. Framboð framhaldsnáms í háskólum hefur aukist mjög frá því að Rannsóknarnámssjóðurinn var settur á fót árið 1995 og mun fleiri stunda framhaldsnám hérlendis en áður. Mikilvægt er að styrkir Rannsóknarnámssjóðs nýtist til að efla framhaldsnám á Íslandi. Þessi skilyrði hindra ekki að nemendur geti tekið hluta af námi sínu við erlenda háskóla, enda sé nemandinn skráður í háskóla hér á landi.
Í frumvarpinu er lagt til að Þjónustumiðstöð vísindarannsókna taki að mestu leyti við hlutverki núverandi skrifstofu Rannsóknarráðs Íslands en taki þó ekki þátt í stefnumótunarstarfi Vísinda- og tækniráðs á annan hátt en að veita ráðgjöf og upplýsingar, sé eftir því óskað. Er það í samræmi við markmið endurskoðunar á lögum nr. 61/1994 sem byggist á því að skýrari mörk verði dregin á milli stefnumótunar á sviði rannsókna annars vegar og úthlutunar styrkja og þjónustu við rannsóknaaðila hins vegar. Meðal helstu þátta starfseminnar verða vistun og þjónusta vegna Rannsóknasjóðs, Tækjasjóðs, Rannsóknarnámssjóðs og annarra sjóða sem menntamálaráðherra og Vísinda- og tækniráð fela stjórn Rannsóknasjóðs að fara með. Að auki er um að ræða þjónustu sem leiðir af þátttöku Íslands í rannsóknasamstarfi vegna aðildarinnar að Evrópska efnahagssvæðinu, Norðurlandasamstarfi og öðru alþjóðlegu samstarfi og söfnun hagtalna um rannsóknir og þróun auk úttekta á sviði rannsóknamála og kynningar á rannsóknastarfsemi í landinu. Í því sambandi mun stofnunin sérstaklega veita Vísinda- og tækniráði og nefndum þess upplýsingar um vísindarannsóknir í landinu. Það er ljóst að samtvinnun þessara þátta á einum stað gefur veruleg samlegðaráhrif og hagkvæmni.
Í samræmi við framangreint er gert ráð fyrir að Þjónustumiðstöð vísindarannsókna sinni gagnasöfnun og miðlun upplýsinga fyrir Vísinda- og tækniráð, en að ekki verði um aðra umsýslu að ræða af hennar hálfu. Í stað þess munu menntamálaráðuneytið og iðnaðarráðuneytið annast umsýslu fyrir vísindanefnd og tækninefnd, svo sem að annast undirbúning og boðun funda og ritun fundargerða. Er þetta í anda þess megintilgangs lagafrumvarps um Vísinda- og tækniráð að aðgreina stefnumótun stjórnvalda í vísinda- og tæknimálum frá fjármögnun rannsóknarverkefna og þjónustu vegna rannsókna.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Um 2. gr.
Umsækjendur eiga styrkveitingu undir ítarlegu faglegu mati, hvort sem um er að ræða einstaklinga eða rannsóknahóp sem vinnur sameiginlega að rannsóknarverkefni. Þannig er það hæfni rannsóknahópsins til að leysa verkefnin samkvæmt mati á færni þeirra sem hann skipa, reynslu og fyrra árangri, ásamt gæðum umsókna og aðstöðu umsækjenda til að ná settu marki, sem liggur ávallt til grundvallar mati á umsóknum. Þetta á einnig við þegar rannsóknirnar eru unnar undir heildstæðri yfirstjórn innan einnar eða fleiri opinberra rannsóknastofnana eða fyrirtækja.
Rannsóknasjóður gerir samning um styrkveitingu við styrkþega og fyrirtæki eða stofnanir sem veita rannsóknaaðstöðuna. Samninginn skal endurskoða verði breytingar á forsendum hans á styrktímabilinu. Tilkynna skal sjóðnum ef breyting verður á rannsóknahópnum sem metinn var við umsókn og skal stjórn hans þá meta hvort þörf sé á að gera nýjan samning. Hið sama gildir ef aðstaða styrkþega til rannsóknanna versnar, til dæmis ef einstakir aðilar hætta samstarfi. Þetta gerir þá kröfu til stofnana og fyrirtækja að skilgreind sé aðkoma þeirra að viðkomandi rannsóknarverkefni. Þannig er gert ráð fyrir að samningar séu gerðir á milli vísindamannanna og stofnunar eða fyrirtækis þeirra eða að stofnunin/fyrirtækið samþykki fyrir sitt leyti þátttöku í viðkomandi rannsóknarverkefni og umsamin mótframlög við styrk Rannsóknasjóðs til þess. Sama máli gegnir um verkefni sem byggist á samstarfi fleiri en einnar rannsóknastofnunar eða fyrirtækis. Þegar um samstarf um rannsóknir er að ræða er gert ráð fyrir að þátttakendur geri samninga sín á milli um eignar- og nýtingarrétt á niðurstöðum. Sjóðurinn tekur við hlutverki Vísindasjóðs og Tæknisjóðs sem starfað hafa samkvæmt lögum nr. 61/1994. Sjóðurinn getur veitt styrki til umfangsmeiri verkefna að undangengnu ítarlegu mati á raunhæfni verk-, kostnaðar- og fjármögnunaráætlunar vekefnisins eða styrki að fastri fjárhæð til annarra umfangsminni verkefna. Sjóðurinn getur veitt styrki til allt að þriggja ára í senn.
Í greininni er einnig fjallað um hlutverk Tækjasjóðs sem tekur við hlutverki Bygginga- og tækjasjóðs sem starfar samkvæmt lögum nr. 61/1994. Hlutverk Tækjasjóðs er að veita opinberum rannsóknastofnunum og sjálfseignarstofnunum styrki til kaupa á dýrum tækjum og búnaði vegna rannsókna. Við úthlutun úr Tækjasjóði skal áhersla lögð á tækjabúnað sem eflir rannsóknir í landinu. Með því að hafa sömu stjórn í Tækjasjóði og Rannsóknasjóði er leitast við að samhæfa úthlutanir úr sjóðunum til verkefna sem skara fram úr. Þá er um að ræða stærri rannsóknatæki sem hafa mikla þýðingu fyrir tilteknar rannsóknir eða heilar vísindagreinar. Umsóknir með samstarfi rannsóknaraðila og samfjármögnun tækjakaupa skulu að öðru jöfnu hafa forgang.
Um 3. gr.
Varðandi tekjur Tækjasjóðs er gert ráð fyrir því að sjóðurinn hafi sömu tekjur og Bygginga- og tækjasjóður hafði áður samkvæmt lögum nr. 61/1994.
Um 4. gr.
Gera ber strangar kröfur um hæfni þeirra einstaklinga sem sitja í stjórn Rannsóknasjóðs. Þeir skulu hafa reynslu af eða þekkingu á vísindarannsóknum sem standast alþjóðlegar kröfur á sviði grunnrannsókna eða hagnýtra rannsókna. Leitast skal við að hafa jafnvægi í stjórninni milli sjónarmiða grunnrannsókna og hagnýtra rannsókna, annars vegar, og sjónarmiða háskólastigs, rannsóknastofnana og einkaaðila hins vegar.
Ákvæði um að ákvörðun stjórnar Rannsóknasjóðs sé endanleg og verði ekki áfrýjað er nýlunda. Í framkvæmd er reyndar litið svo á að ákvarðanir um styrkveitingar samkvæmt lögum nr. 61/1994 séu ekki kæranlegar til menntamálaráðuneytisins og var sá skilningur meðal annars staðfestur í áliti umboðsmanns Alþingis sem tók kvörtun vegna styrkveitinga samkvæmt lögunum til meðferðar, án þess að þeim hafði áður verið skotið til menntamálaráðuneytisins. Hér er lagt til að lögfest verði með skýrum hætti að ákvarðanir stjórnar Rannsóknasjóðs um styrkveitingar verði ekki kæranlegar.
Um 5. gr.
Gert er ráð fyrir að stjórn Rannsóknasjóðs hafi almennar áherslur Vísinda- og tækniráðs til viðmiðunar við úthlutun jafnhliða faglegu mati. Þær gætu til dæmis falið í sér áherslur á tiltekin rannsóknasvið, mikilvægi rannsóknanna fyrir íslenskt þjóðlíf, menntun ungra vísindamanna eða ákvæði um mótframlag. Hlutverk fagráða er hins vegar að meta umsóknir samkvæmt færni umsækjenda til að framkvæma verkið og aðstöðu þeirra til þess auk vísindagildis verkefnisins á alþjóðlegan mælikvarða eða skráningar einkaleyfis eða hugverkaréttinda.
Stjórn Rannsóknasjóðs og fagráðum er heimilt að leita umsagnar sérfróðra aðila um einstakar umsóknir. Stjórn Rannsóknasjóðs ber að gera grein fyrir áherslum sínum við úthlutun ef þær fela í sér frávik frá tillögum fagráða. Ákvæði um að sömu menn sitji ekki í fagráðum og Vísinda- og tækniráði eða stjórn Rannsóknasjóðs á að tryggja sjálfstæði fagráða og er hliðstætt þeirri skipan sem gilt hefur um Rannsóknarráð Íslands.
Um 6. gr.
Hvað varðar endanlegt úrskurðarvald Rannsóknarnámssjóðs gildir það sama og um Rannsóknasjóð og Tækjasjóð, sbr. athugasemd við 4. gr. frumvarpsins.
Um 7. gr.
Um 8. gr.
Um 9. gr.
Um 10. gr.
Um 11. gr.
Um 12. gr.
Um 13. gr.
Um ákvæði til bráðabirgða I.
Áréttað er að þeir sem þegið hafa styrk samkvæmt lögum nr. 61/1994, um Rannsóknarráð Íslands, haldi óbreyttum réttindum og skyldum samkvæmt þeim styrkveitingum verði frumvarp þetta að lögum.
Þá gerir ákvæðið ráð fyrir að núverandi Rannsóknarráð Íslands samkvæmt lögum nr. 61/1994 starfi áfram að undirbúningi tillagna að úthlutunarreglum skv. 8. gr. frumvarpsins, verði það að lögum, um styrkveitingar á árinu 2003, þó eigi lengur en til 1. september 2002. Er það talið nauðsynlegt til að tryggja samfellu í úthlutunarstarfi sjóðanna samkvæmt frumvarpi þessu og koma til móts við tímaramma umsóknarferlis í nýjan Rannsóknasjóð.
Ákvæðið gerir ráð fyrir að núverandi stjórn Rannsóknarnámssjóðs samkvæmt lögum nr. 61/1994 haldi umboði sínu verði frumvarp þetta að lögum.
Samningar við þá sem ráðnir hafa verið í tímabundnar stöður rannsóknarprófessora samkvæmt lögum nr. 61/1994 halda gildi sínu í samræmi við ákvæði þeirra. Sérstakir samningar voru gerðir um þessar stöður og því talið eðlilegt að ráðning þeirra standi þar til ráðningarsamningar renna út.
Um ákvæði til bráðabirgða II.
Þá þykir rétt að taka það sérstaklega fram að skipað skuli í stjórn Rannsóknasjóðs eigi síðar en 1. september 2002 til að tryggja að verði frumvarp þetta að lögum komi þau til framkvæmda eigi síðar en á þeim tíma.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um opinberan stuðning við vísindarannsóknir.
Í frumvarpinu er í fyrsta lagi lagt til að Rannsóknarráð Íslands verði lagt niður sem vettvangur fyrir stefnumörkun í rannsóknarmálum. Í frumvarpi til laga um Vísinda- og tækniráð er lagt til að samnefnt ráð taki við þessu hlutverki og heyri það undir forsætisráðuneytið en njóti aðstoðar bæði menntamálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis. Í Rannsóknarráði Íslands sitja ellefu einstaklingar og eru varamenn þeirra jafnmargir, en gert er ráð fyrir að í Vísinda- og tækniráði sitji fjórir ráðherrar auk fjórtán annarra fulltrúa og verði varamenn fjórtán. Áætlað er að útgjöld vegna aðal- og varamanna í Rannsóknarráði Íslands og aðstoð við störf þeirra hafi numið 13–15 m.kr. á síðasta ári. Ekki liggur fyrir hvernig þau útgjöld skiptast milli vinnu við stefnumörkun og við önnur viðfangsefni. Fjármálaráðuneytið telur að frumvarpið feli ekki í sér aðra breytingu á útgjöldum ríkisins vegna stefnumörkunar í rannsóknarmálum en þá að þau færist til innan ríkisins.
Í öðru lagi er lagt til að nýr sjóður, Rannsóknasjóður, taki við hlutverki Vísindasjóðs og Tæknisjóðs og að nýr sjóður, Tækjasjóður, taki við hlutverki Bygginga- og tækjasjóðs. Tekjustofnar sjóðanna breytast ekki og engin fyrirheit eru gefin um framlög til þeirra úr ríkissjóði í frumvarpinu. Gert er ráð fyrir að í stjórn Rannsóknasjóðs sitji fimm menn sem ákveði styrkveitingar á grundvelli umsagna nokkurra fagráða og sitji allt að sjö manns í hverju þeirra. Samkvæmt gildandi lögum er það hlutverk Rannsóknarráðs Íslands að úthluta styrkjum á grundvelli tillagna fimm manna úthlutunarnefndar fyrir hvorn sjóð, Tæknisjóð og Vísindasjóð. Úthlutunarnefndirnar byggja tillögur sínar á umsögnum ráðgefandi fagráða. Bygginga- og tækjasjóður hefur einnig verið undir stjórn Rannsóknarráðs Íslands og menntamálaráðherra hefur staðfest tillögur um úthlutun úr honum. Áætlað er að útgjöld vegna þjónustu skrifstofu Rannsóknarráðs Íslands við sjóðina hafi numið tæpum 40 m.kr. á síðasta ári. Ætla verður að fækkun þeirra sem koma að úthlutun lækki kostnað við stjórn sjóðanna, en ekki liggja fyrir nægar upplýsingar til að áætla fjárhæðir í þessu sambandi.
Í þriðja lagi er lagt til að stofnuð verði þjónustumiðstöð vísindarannsókna er taki við meginhluta þeirrar starfsemi sem nú er unnin af skrifstofu Rannsóknarráðs Íslands. Sú formbreyting er lögð til í frumvarpinu að forstöðumaður verði skipaður af menntamálaráðherra til fimm ára í senn í stað þess að vera ráðinn af Rannsóknarráði til jafnmargra ára. Jafnframt fellur niður upptalning í lögum á ýmsum verkefnum sem Rannsóknarráð sinnir nú. Gera má ráð fyrir að flest þeirra verði unnin áfram, ýmist í ráðuneytum menntamála og iðnaðar eða hjá þjónustumiðstöðinni gegn samningum við þessi ráðuneyti. Áætlað er að útgjöld Rannsóknarráðs við alþjóðasamstarf, almenna stjórn, upplýsingasöfnun og kynningarstarf hafi numið tæpum um 50 m.kr. á síðasta ári. Talið er að breytt fyrirkomulag muni lækka stjórnsýslukostnað eitthvað, en ekki eru forsendur til að áætla fjárhæðir.
Í fjórða lagi er lagt til í bráðabirgðaákvæði að störf framkvæmdastjóra Rannsóknarráðs Íslands og önnur störf á skrifstofu ráðsins verði lögð niður við gildistöku laganna. Gera má ráð fyrir að af þeim sökum geti hlotist allt að 13,5 m.kr. biðlaunakostnaður og þar af gætu allt að 8–9 m.kr. fallið til á yfirstandandi ári.
Í fimmta lagi er lagt til í bráðabirgðaákvæði að tímabundnar stöður rannsóknarprófessora samkvæmt gildandi lögum um Rannsóknarráð Íslands verði lagðar niður að lokinni samningsbundinni ráðningu þeirra sem nú skipa þær. Um er að ræða fimm störf hjá Háskóla Íslands og er áætlað að kostnaður við hvert starf hafi numið 5,7 m.kr. á árinu 2001 eða alls 28,5 m.kr. samkvæmt upplýsingum skólans.
Þegar allt er talið telur fjármálaráðuneytið að frumvarpið muni leiða til lægri stjórnsýslukostnaðar verði það að lögum þótt ekki liggi fyrir nægar upplýsingar til að meta fjárhæðir í því sambandi. Þá mun frumvarpið leiða til 28,5 m.kr. árlegs sparnaðar eftir að stöður rannsóknarprófessora hafa verði lagðar niður. Á móti koma allt að 13,5 m.kr. tímabundin útgjöld vegna biðlauna.