Ferill 557. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 877  —  557. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um aukið lögreglueftirlit.

Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.



     1.      Hvernig hyggst ráðherra kanna hvort þörf sé á frekara lögreglueftirliti í íbúðarhverfum Reykjavíkur?
     2.      Mun jafnframt verða könnuð þörf á frekara lögreglueftirliti í nágrannabæjum Reykjavíkur?
     3.      Hvenær mun niðurstaða liggja fyrir?