Ferill 574. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 901  —  574. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um fjármögnun vetnisrannsókna.

Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.



     1.      Hvernig er háttað aðild ríkisins að rannsóknum vegna hugsanlegrar vetnisframleiðslu hérlendis?
     2.      Hversu miklu fé hefur ríkisstjórnin veitt til rannsókna eða verkefna til að kanna vetnisvæðingu bifreiða- og skipaflota?
     3.      Hvaða styrkir hafa fengist til þessara verkefna og hvernig er þeim styrkveitingum varið?


Skriflegt svar óskast.