Ferill 591. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 924 — 591. mál.
Fyrirspurn
til samgönguráðherra um Kísilveg.
Frá Kristjáni L. Möller.
1. Hver eru áform Vegagerðarinnar um framkvæmdir á Kísilvegi (87) á næstu árum, og hvenær er áætlað að ljúka fullnaðaruppbyggingu þessa vegar með bundnu slitlagi?
2. Eru uppi áform um að auka vetrarþjónustu á þessum vegi, t.d. með snjómokstri alla daga vikunnar?