Ferill 606. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 953  —  606. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um fjölda leguplássa og starfsmanna á Landspítala – háskólasjúkrahúsi.

Frá Þuríði Backman.



     1.      Hve mörg legupláss voru á stofnunum sem sameinaðar voru í Landspítala – háskólasjúkrahúsi og hve margir starfsmenn í hverri starfsstétt, flokkað eftir sviðum:
                  a.      við sameininguna,
                  b.      um síðustu áramót?
     2.      Hve mörg legupláss voru á sjúkrahúsinu við lok sameiningarferilsins og hver er áætluð starfsmannaþörf þess, flokkað eftir starfsstéttum og sviðum?


Skriflegt svar óskast.