Ferill 699. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1118 — 699. mál.
Fyrirspurn
til iðnaðarráðherra um þátttöku ríkissjóðs í kostnaði við undirbúning álvers í Reyðarfirði.
Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.
1. Hver er heildarkostnaður ríkissjóðs við undirbúning álvers í Reyðarfirði, sundurliðað eftir árum, og af hvaða fjárlagaliðum hafa þeir fjármunir komið?
2. Hver hefur þátttaka Norsk Hydro/Hydro Aluminium verið í þessum kostnaði?
3. Hvert hefur verið hlutverk STAR, samstarfsnefndar um staðarvalsathuganir iðnaðarsvæða á Reyðarfirði, í þessum undirbúningi og hverjar voru árlegar heildargreiðslur til nefndarinnar á tímabilinu 1997–2002?
4. Hvaða hlutverki hefur eignarhaldsfélagið Hraun ehf. gegnt við undirbúning álvers í Reyðarfirði og er það enn starfandi? Hvaða geiðslur hafa runnið til félagsins úr ríkissjóði vegna undirbúnings álvers í Reyðarfirði, sundurliðað eftir árum?
Skriflegt svar óskast.