Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 1155, 127. löggjafarþing 580. mál: virðisaukaskattur og tryggingagjald (reikningshald í erlendum gjaldmiðli).
Lög nr. 34 16. apríl 2002.
I. KAFLI
Breyting á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum.
Virðisaukaskattsskýrslur félaga sem fengið hafa heimild til að færa bókhald og semja ársreikning í erlendum gjaldmiðli skv. 11. gr. A laga um ársreikninga skulu byggjast á upprunalegum fjárhæðum í íslenskum krónum.
II. KAFLI
Breyting á lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum.
Launaframtal félaga sem fengið hafa heimild til að færa bókhald og semja ársreikning í erlendum gjaldmiðli skv. 11. gr. A laga um ársreikninga skal byggjast á upprunalegum fjárhæðum í íslenskum krónum eða umreiknuðum fjárhæðum á daggengi.
Þingskjal 1155, 127. löggjafarþing 580. mál: virðisaukaskattur og tryggingagjald (reikningshald í erlendum gjaldmiðli).
Lög nr. 34 16. apríl 2002.
Lög um breytingu á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, og lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum.
1. gr.
Við 24. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Virðisaukaskattsskýrslur félaga sem fengið hafa heimild til að færa bókhald og semja ársreikning í erlendum gjaldmiðli skv. 11. gr. A laga um ársreikninga skulu byggjast á upprunalegum fjárhæðum í íslenskum krónum.
2. gr.
Við 12. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:Launaframtal félaga sem fengið hafa heimild til að færa bókhald og semja ársreikning í erlendum gjaldmiðli skv. 11. gr. A laga um ársreikninga skal byggjast á upprunalegum fjárhæðum í íslenskum krónum eða umreiknuðum fjárhæðum á daggengi.
3. gr.
Lög þessi öðlast þegar gildi.Samþykkt á Alþingi 8. apríl 2002.