Ferill 713. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1175 — 713. mál.
Fyrirspurn
til menntamálaráðherra um fjármálafræðslu í skólum.
Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.
1. Er fjármálafræðsla lögbundin grein í grunn- eða framhaldsskólum?
2. Hvenær var fjármálafræðsla tekin upp í skólum?
3. Í hvaða bekkjum grunn- eða framhaldsskóla fer fjármálafræðsla fram?
4. Hvaða námsefni er kennt um fjármál annars vegar í grunnskólum og hins vegar framhaldsskólum og til hvaða þátta fjármála nær það námsefni?
Skriflegt svar óskast.
Prentað upp.