Ferill 719. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 1224  —  719. mál.




Skýrsla



samgönguráðherra um störf rannsóknarnefndar sjóslysa fyrir árið 2001.

(Lögð fyrir Alþingi á 127. löggjafarþingi 2001–2002.)


    Samgönguráðherra skipar rannsóknarnefnd sjóslysa samkvæmt lögum um rannsókn sjóslysa, nr. 68/2000.
    Nefndina skipa nú:
                   Ingi Tryggvason héraðsdómslögmaður, formaður nefndarinnar,
                   Emil Ragnarsson skipaverkfræðingur,
                   Hilmar Snorrason, skipstjóri og skólastjóri Slysavarnarskóla sjómanna,
                   Pétur Ágústsson skipstjóri,
                   Pálmi K. Jónsson vélfræðingur.
    Jón A. Ingólfsson, skipstjóri og rekstrarfræðingur, er framkvæmdastjóri nefndarinnar.
    Fjárveiting til nefndarinnar á fjárlögum ársins 2001 var 18,1 millj. kr. Á árunum 1993– 2001 var kostnaður við starfsemi nefndarinnar sem hér segir:

1993 6.621.823 kr.
1994 7.705.328 kr.
1995 8.707.209 kr.
1996 8.756.513 kr.
1997 11.555.170 kr.
1998 16.204.272 kr.
1999 14.914.467 kr.
2000 17.663.936 kr.
2001 20.554.452 kr.

    Hinn 1. september 2000 tóku gildi lög um rannsóknir sjóslysa og reglugerð um sama efni var sett í janúar 2001. Helstu breytingarnar eru að nefndin er nú mun sjálfstæðari í störfum sínum en áður og starfsumhverfi hennar er gjörbreytt.
    Kristján Guðmundsson, starfsmaður nefndarinnar, lét af störfum við daglegan rekstur hennar 31. október 2001, en hann mun þó vinna að því að koma upplýsingum um mál sem nefndin fjallaði um á árunum 1986–2001 í nýjan gagnagrunn. Frá og með 1. nóvember 2001 var Jón Arilíus Ingólfsson, skipstjóri og rekstrarfræðingur, ráðinn framkvæmdastjóri nefndarinnar og í lok ársins var ráðinn nýr starfsmaður sem hóf störf í ársbyrjun 2002. Í kjölfar fyrrgreindra lagabreytinga jukust umsvif nefndarinnar og því var nauðsynlegt að fjölga í starfsliði hennar.
    Í byrjun desember var starfsemi nefndarinnar flutt úr Hafnarhúsinu í Reykjavík í húsnæði Flugmálastjórnar í flugstöðinni í Stykkishólmi. Reiknað er með að heildarkostnaður við flutninginn og breytingar á húsnæði verði á bilinu 2–3 millj. kr. Þessi kostnaður verður greiddur af sérstakri fjárveitingu samgönguráðuneytisins til flutnings verkefna út á land.
    Síðasta prentaða skýrsla nefndarinnar um rannsóknir sjóslysa var fyrir árið 1997 og vinna við útgáfu skýrslna fyrir árin 1998 og 1999 stendur yfir. Þær verða gefnar út árið 2002 og fyrirhugað er að gera þær aðgengilegar yfir netið. Í athugun er breytt fyrirkomulag á formi og útgáfu skýrslunnar frá og með árinu 2000.
    Verið er að undirbúa nýjan vef nefndarinnar og stefnt að því að hann verði öflugur þáttur í starfi hennar í framtíðinni og að þar verði veittar upplýsingar um rannsókn einstakra mála.
Fjöldi mála hjá nefndinni er svipaður frá ári til árs ef frá er talið 1999. Árið 2000 voru 119 mál tekin fyrir. Alls er 19 málum ólokið en flest eru þau á lokastigi. Árið 2001 kom 121 mál til nefndarinnar, 18 þeirra er lokið og 16 á lokastigi. Vinna hefur tafist vegna skipulagsbreytinga og flutnings á aðsetri nefndarinnar. Nú hefur nefndin sett sér það markmið að öll alvarlegri mál verði að jafnaði afgreidd innan þriggja mánaða frá því að slys verður.
    Um áramót voru eins og fyrr segir 93 óafgreidd mál frá árinu 2001 og 19 frá 2000. Eins og fram kemur í töflu 1 má segja að síðustu tvö ár séu meðalár í verkefnafjölda nefndarinnar á níu ára tímabili.

Tafla 1. Yfirlit um mál sem bárust nefndinni á árunum 1993–2001.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Tafla 2 sýnir fjölda bótaskyldra slysa samkvæmt tilkynningum til Tryggingastofnunar ríkisins. Þar kemur fram að þeim hefur fækkað lítillega milli ára.

Tafla 2. Bótaskyld slys.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.