Stofnun framhaldsskóla á Snæfellsnesi

Miðvikudaginn 19. febrúar 2003, kl. 13:55:43 (3992)

2003-02-19 13:55:43# 128. lþ. 83.1 fundur 505. mál: #A stofnun framhaldsskóla á Snæfellsnesi# fsp. (til munnl.) frá menntmrh., SAÞ
[prenta uppsett í dálka] 83. fundur, 128. lþ.

[13:55]

Sigríður A. Þórðardóttir:

Herra forseti. Ég sé sérstaka ástæðu til að blanda mér í þessa umræðu þar sem ég bjó forðum á Snæfellsnesi, var þá í þeirri aðstöðu að þurfa að senda börn mín til náms í framhaldsskóla. Ég ætla að nota tækifærið til að óska Snæfellingum til hamingju og ég tel að það sem hefur komið þessu máli í þennan góða farveg sé auðvitað órjúfandi samstaða þeirra. Og það finnst mér að skipti mestu máli í þessu sambandi.