Upphæð atvinnuleysisbóta

Mánudaginn 03. mars 2003, kl. 15:18:46 (4253)

2003-03-03 15:18:46# 128. lþ. 86.1 fundur 454#B upphæð atvinnuleysisbóta# (óundirbúin fsp.), félmrh.
[prenta uppsett í dálka] 86. fundur, 128. lþ.

[15:18]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):

Herra forseti. Ég tel að sæmilega launaður maður standi að öðru jöfnu skár ef hann missir vinnuna heldur en sá sem er á lægstu launum og ég hef miklu meiri áhyggjur af þeim sem hafa af litlu að taka. Menn geta afborið það um einhvern tíma ef þeir hafa verið í sæmilegu starfi og sæmilega borguðu þó þeir missi vinnuna en það er miklu sárara fyrir þá sem hafa verið illa borgaðir að vera mánuðum saman atvinnulausir.