Forseti (Guðjón Guðmundsson):
Forseti vill láta þess getið að upp úr kl. 3.30 fer fram umræða utan dagskrár um áhrif af skattstefnu ríkisstjórnarinnar. Málshefjandi er hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir. Hæstv. fjmrh. verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.