Fjáraukalög 2002

Fimmtudaginn 05. desember 2002, kl. 12:02:02 (2143)

2002-12-05 12:02:02# 128. lþ. 47.1 fundur 66. mál: #A fjáraukalög 2002# frv., KHG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur, 128. lþ.

[12:02]

Kristinn H. Gunnarsson (andsvar):

Herra forseti. Ég vil bara árétta það að menn náðu niðurstöðu um pólitískar áherslur í þessum efnum sl. vor. Þær birtast í áliti því sem meiri hluti iðnn. lagði fram í þingsölum til viðbótar við þær tillögur sem ríkisstjórnin hafði fram að færa. Vegna þess m.a. að skilja má frv. til fjárlaga næsta árs á þann veg að ríkisstjórnin hyggist bara hrinda í framkvæmd þeim tillögum sem er að finna í hennar plaggi þá gerði ég athugasemd við það í ræðu minni. Ég ætlast til að ríkisstjórnin hrindi í framkvæmd þeim áherslum sem menn náðu samkomulagi um.