Fjárlög 2003

Fimmtudaginn 05. desember 2002, kl. 14:26:39 (2179)

2002-12-05 14:26:39# 128. lþ. 47.2 fundur 1. mál: #A fjárlög 2003# frv., GAK (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 47. fundur, 128. lþ.

[14:26]

Guðjón A. Kristjánsson (um fundarstjórn):

Herra forseti. Ég verð að viðurkenna að ég er búinn að hlusta á þessar ræður hér og ég er engu nær um það hvaða yfirlýsingu menn hafa verið að gefa um það með hvaða hætti tekið verður á málefnum Byrgisins. Þar sem forseti stjórnar þessum fundi átta ég mig heldur ekki á því með hvaða hætti við eigum að fara inn í þessi mál í framhaldinu.