2. FUNDUR
miðvikudaginn 2. okt.,
kl. 7.50 síðdegis.
[19:50]
Stefnuræða forsætisráðherra og umræða um hana (útvarpsumræður).
Umræðurnar skiptust í þrjár umferðir og hafði hver þingflokkur, aðrir en þingflokkur forsætisráðherra, til umráða 12 mínútur í fyrstu umferð, í annarri umferð höfðu þingflokkarnir 6 mínútur en í þeirri þriðju 5 mínútur hver þingflokkur.
Röð flokkanna í öllum umferðum var þessi: Sjálfstæðisflokkur, Samfylkingin, Framsóknarflokkur, Vinstri hreyfingin - grænt framboð og Frjálslyndi flokkurinn.
Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk voru Davíð Oddsson forsrh. í fyrstu umferð, Sigríður A. Þórðardóttir, 3. þm. Reykn., í annarri umferð og Arnbjörg Sveinsdóttir, 2. þm. Austurl., í þriðju umferð.
Ræðumenn Samfylkingarinnar voru í fyrstu umferð Össur Skarphéðinsson, 7. þm. Reykv., Kristján L. Möller, 3. þm. Norðurl. v., í annarri, og Þórunn Sveinbjarnardóttir, 12. þm. Reykn., í þriðju umferð.
Fyrir Framsóknarflokk töluðu Guðni Ágústsson landbrh. í fyrstu umferð, í annarri Kristinn H. Gunnarsson, 3. þm. Vestf., og í þriðju umferð Jónína Bjartmarz, 16. þm. Reykv.
Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna - grænt framboð voru Steingrímur J. Sigfússon, 3. þm. Norðurl. v., í fyrstu umferð, í annarri umferð Kolbrún Halldórsdóttir, 17. þm. Reykv., og í þriðju umferð Jón Bjarnason, 5. þm. Norðurl. v.
Fyrir Frjálslynda flokkinn töluðu Sverrir Hermannsson, 18. þm. Reykv., í fyrstu og þriðju umferð, og Guðjón A. Kristjánsson, 4. þm. Vestf., í annarri umferð.
Fundi slitið kl. 22:01.
---------------