Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 79. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 79  —  79. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um bifreiða-, ferða- og risnukostnað.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.


     1.      Hver var bifreiða-, ferða- og risnukostnaður ríkisins árin 2000 og 2001, sundurliðað eftir ráðuneytum og stofnunum, og hver hefur raunhækkun orðið milli þessara ára, sundurliðað á sama hátt?
     2.      Hver hefur raunhækkun framangreindra kostnaðarliða orðið síðustu fimm ár samanborið við neysluverðsvísitölu, annars vegar í prósentum og hins vegar fjárhæðum og sundurliðað milli bifreiða-, ferða- og risnukostnaðar?


Skriflegt svar óskast.