Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 85. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 85  —  85. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um stuðning við frjáls félagasamtök.

Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.



    Hvernig hefur stuðningi samgönguráðuneytis við frjáls félagasamtök verið háttað árin 1998–2001? Óskað er eftir því að í svarinu komi fram til hvers konar verkefna styrkir hafa verið veittir, hversu háir styrkir og hverjir ábyrgðaraðilar verkefnanna hafa verið, sundurliðað eftir fjárlagaliðum og árum.


Skriflegt svar óskast.