Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 94. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 94  —  94. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um söfnunarkassa og happdrættisvélar.

Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.



     1.      Hverjar voru brúttótekjur Íslenskra söfnunarkassa sf. og Happdrættis Háskóla Íslands af söfnunarkössum og happdrættisvélum árin 2000 og 2001?
     2.      Hver voru heildarrekstrargjöld hvors fyrirtækis á þessum árum?
     3.      Hverjar voru heildarvinningsfjárhæðir hvors fyrirtækis sömu ár?


Skriflegt svar óskast.