Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 109. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 109  —  109. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um fjölgun hjúkrunarrýma í Reykjavík.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.


     1.      Hvernig hyggst ráðherra standa að endurbótum og fjölgun nýrra hjúkrunarrýma í Reykjavík, sbr. viljayfirlýsingu ráðherra frá því í maí sl.?
     2.      Hver er áætluð aukning hjúkrunarrýma á næsta ári í samræmi við þá yfirlýsingu?
     3.      Hversu langur er biðlisti nú eftir hjúkrunarrýmum í Reykjavík og hver er árleg áætluð þörf næstu fjögur ár?