Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 113. máls.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 113  —  113. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um framhaldsskóla á Snæfellsnesi.

Frá Jóni Bjarnasyni.



     1.      Hvað dvelur ákvörðun um stofnun nýs framhaldsskóla á norðanverðu Snæfellsnesi sem stefnt hefur verið að á undanförnum árum?
     2.      Mun ráðherra beita sér fyrir því að veitt verði framlag í fjárlögum næsta árs til stofnunar slíks skóla eins og sveitarstjórnir og íbúar í Snæfellsbæ, Grundarfirði, Helgafellssveit og Stykkishólmi hafa sóst mjög eftir?