Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 122. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 122  —  122. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um lyfjaávísanir lækna.

Frá Margréti Frímannsdóttur.



     1.      Hvað leiddi rannsókn landlæknisembættisins í ljós um meintar óeðlilegar ávísanir lækna á ávanabindandi lyf?
     2.      Hefur eftirlit með lyfjaávísunum lækna verið hert? Ef svo er, á hvern hátt?