Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 124. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 124  —  124. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra um gjaldskrá tannlæknaþjónustu.

Frá Margréti Frímannsdóttur.



    Hefur verið gengið frá samningum milli Tryggingastofnunar og tannlækna um gjaldskrá fyrir endurgreiðslu á tannlæknaþjónustu? Ef svo er, hvað felst í þeim samningi, og ef ekki, má vænta breytinga á gildandi gjaldskrá Tryggingastofnunar fyrir tannlæknaþjónustu?