Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 144. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 144  —  144. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um hjúkrunardeild fyrir aldraða í Árborg.

Frá Sigríði Jóhannesdóttur.



     1.      Hver er núverandi staða áætlana um byggingu hjúkrunardeildar fyrir aldraða í Árborg?
     2.      Mun ráðherra við afgreiðslu fjárlaga beita sér fyrir að tryggja nægilegt fé til framkvæmdanna á næsta ári?