Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 161. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 161  —  161. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um þróun orkuverðs á Sauðárkróki.

Frá Árna Steinari Jóhannssyni.



     1.      Hvernig hefur orkuverð til iðnfyrirtækja þróast eftir að Rarik tók við rekstri Rafveitu Sauðárkróks, t.d. til Steinullarverksmiðjunnar hf., Loðskinns ehf., Sauðárkróksbakarís og Efnalaugar Sauðárkróks?
     2.      Hvernig gerir Rarik ráð fyrir að raforkuverð til fyrrgreindra aðila þróist á þessu ári og næstu tveimur árum (2002–2004)?