Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 178. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 179  —  178. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um framlög Byggðastofnunar til eignarhaldsfélaga og atvinnuþróunarsjóða á landsbyggðinni.

Frá Kristjáni Pálssyni.


     1.      Hve há voru framlög Byggðastofnunar til eignarhaldsfélaga og atvinnuþróunarsjóða á landsbyggðinni hvert ár síðustu fjögur ár og hvar á landinu eru þau?
     2.      Hver er ástæða þess að hætt er að veita þessi framlög?